
Al-Nassr er sagt íhuga að færa son Cristiano Ronaldo, Cristiano Ronaldo Jr., upp í aðallið félagsins á næsta tímabili.
Samkvæmt sádiarabíska miðlinum Al Wiam verður endanleg ákvörðun þó tekin eftir tímabilið, þegar þjálfarateymið metur hvort hann sé tilbúinn til að taka skrefið.
Er þetta talið tengjast viðræðum við Ronaldo um nýjan samning. Sá sem nú er í gildi rennur út eftir næstu leiktíð en Al-Nassr vill halda honum.
Ronaldo hefur lengi lýst því yfir að hann vilji spila með syni sínum og gæti það nú orðið að veruleika.