
Alexis Mac Allister gæti óvænt farið frá Liverpool í sumar samkvæmt Football Insider.
Töluverðar breytingar gætu orðið á leikmannahópi Liverpool í sumar og hefur því verið kastað fram að argentíski miðjumaðurinn gæti verið í hópi þeirra sem fara.
Það er þó nokkuð óvænt, þar sem hinn 27 ára gamli Mac Allister spilar stóra rullu fyrir Liverpool og hefur gert undanfarin ár.
Football Insider segir þó að félagið sjái sér leik á borði með því að selja Mac Allister á besta aldri og meðan hann á enn tvö ár eftir af samningi sínum.
Fái Liverpool inn alvöru upphæð fyrir Mac Allister er líklegt að félagið horfi til mann eins og Adam Wharton hjá Crystal Palace og Eduardo Camavinga hjá Real Madrid til að leysa hann af hólmi.