fbpx
Miðvikudagur 22.apríl 2026
433Sport

Jóhann Már teiknar upp svarta mynd af stöðunni – „Það mun allt hrynja“

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 22. apríl 2026 08:30

Jóhann Már Helgason.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jóhann Már Helgason, einn fremsti spekingur landsins þegar kemur að fjármálum í knattspyrnuheiminum, kom með afar áhugaverða úttekt á stöðu Tottenham í hlaðvarpsþættinum Dr. Football.

Tottenham er í fallsæti ensku úrvalsdeildarinnar þegar fimm umferðir eru eftir, tveimur stigum frá öruggu sæti. Telst það afar óvænt. Liðið endaði vissulega í 17. sæti deildarinnar í fyrra en var aldrei í fallbaráttu og vann þar að auki Evrópudeildina. Þar áður hafði liðið náð sæti í Evrópukeppni árlega um langt skeið.

„Það yrðu ragnarök ef Tottenham myndi falla því Tottenham er ekki þannig klúbbur sem setur sig í stellingar til að falla. Við getum horft í lið eins og Burnley, þeir eru með samninga þar sem leikmenn bara lækka um 40 prósent í launum við að fara niður. Það er ekki einn leikmaður Tottenham á þannig samning,“ sagði Jóhann í Dr. Football um áhrif þess ef Tottenham fellur í ensku B-deildina, Championship.

Ljóst er að félagið þyrfti að selja sína veðrmætustu leikmenn á lægra verði en ella.

„Þeir myndu þurfa að selja leikmenn eins og Xavi Simmons með miklu tapi, bara af því hann er búinn að vera mjög lélegur. Þetta er bókfært þannig að þú deilir kaupverðinu niður á árin á samningum. Það myndi aldrei ná upp í þessar tölur hjá þessum helstu leikmönnum sem þeir hafa keypt. Þeir þyrftu að selja þá á bókfærðu tapi.

Þeir voru í Meistaradeildinni í vetur og voru með miklar sjónvarpstekjur þar, ofan á þessar sjónvarpstekjur í úrvalsdeildinni. Allir þessir tekjustofnar myndu hrynja, þannig að þeir þyrftu að selja frá sér alla sína stærstu leikmenn á brunaútsölu. Þeir gætu ekkert haldið þessum leikmönnum áfram því þá myndu þeir lenda í þessum fjárhagsreglum strax.“

Frá því Mauricio Pochettino hvarf á braut eftir góð fimm ár í starfi 2019 hefur Tottenham haft sjö knattspyrnustjóra, sem hefur sitt að segja.

„Þeir eru búnir að eyða 74 milljónum punda frá því þeir ráku Pochettino í stjóra. Og þá í raun að greiða þeim út. Þetta er búið að vera eins sorgarsaga frá því hann var þarna í 518 daga án þess að kaupa leikmann og fór í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.“

Getty Images

Lið Tottenham mun að öllum líkindum líta allt öðruvísi út í næstefstu deild en það hefur gert í vetur, fari liðið niður.

„Þetta lið er ekki búið að vera gott fyrir og þeir þyrftu að setja saman Championship-útgáfu af Spurs. Þetta lið er samsett þannig að launapakkinn þeirra á ári er aldrei að fara að ganga upp út frá þessum reglum, sem eru mjög stífar í Championship-deildinni, af því þeir missa allar tekjur sínar út frá sjónvarpssamningum.

Svo eru reglurnar þannig í Championship-deildinni að þeir mega ekki einu sinni rukka eins mikið inn á völlinn þó þeir gætu það. Þannig miðasölutekjur munu líka hrynja, það mun allt hrynja. Þetta gæti endað með alls konar vitleysu.“

Að lokum sagði Jóhann þá sem telja að Tottenham gæti þurft á því að halda að falla og fara í enduruppbyggingu vera á algjörum villigötum.

„Allt þetta tal um að þeir gætu haft gott af því að fara niður, það er ekki til meiri þvæla en það.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Vondar fréttir fyrir City og Liverpool

Vondar fréttir fyrir City og Liverpool
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Efstur á óskalista Liverpool til að fylla skarð Salah

Efstur á óskalista Liverpool til að fylla skarð Salah
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Hættir tafarlaust

Hættir tafarlaust
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Barcelona sagt vilja losna við þessa fimm í sumar – Rashford þar á meðal

Barcelona sagt vilja losna við þessa fimm í sumar – Rashford þar á meðal