
Arsenal fékk þungt högg í titilbaráttunni með 2-1 tapi gegn Manchester City á Etihad í gær.
Leikurinn var hörkuspennandi en City hafði betur að lokum. Nú er Arsenal aðeins með þriggja stiga forskot á City á toppi deildarinnar, markatalan einu marki betri en City á leik til góða.
Declan Rice var hvergi af baki dottinn eftir leik og myndavélar náðu því þegar hann sagði við Martin Ödegaard: „Þetta er ekki búið.“
Arsenal hefur aðeins unnið einn af síðustu sex leikjum sínum í öllum keppnum. Liðið þarf að rífa sig í gang til að skáka sjóðheitu liði City á endasprettinum.
This title race is going down to the wire. 👊 pic.twitter.com/XHITjrssy9
— Premier League (@premierleague) April 19, 2026