
Curtis Jones fór ekki í grafgötur með skoðun sína á Everton eftir dramatískan 2-1 sigur Liverpool gegn þeim á útivelli í gær.
Sigurmarkið kom seint í uppbótartíma þegar fyrirliðinn Virgil van Dijk skallaði boltann í netið og tryggði Liverpool þrjú gríðarlega mikilvæg stig í baráttunni um Meistaradeildarsæti.
Eftir leikinn var Jones spurður út í það að Everton hefði getað minnkað muninn á liðunum niður í tvö stig í töflunni.
„Þetta sýnir hvaða lið við erum og hvaða lið þeir eru. Þeir eru að fagna því að vera tveimur stigum á eftir okkur á einu af okkar verstu tímabilum,“ sagði Jones.
Hann bætti við að Liverpool líti ekki um öxl heldur einblíni á að tryggja sér sæti í Meistaradeildinni á næsta tímabili.