

Andoni Iraola mun yfirgefa Bournemouth þegar samningur hans rennur út í sumar. Athletic segir frá.
Félagið reyndi að halda í spænska þjálfarann en hann ákvað að leita nýrra áskorana.
Iraola, sem er 43 ára, hefur vakið athygli fyrir störf sín hjá Bournemouth og því kemur ákvörðunin mörgum á óvart. Hann er orðaður við Newcastle.
Stjórn félagsins er þegar farin að skoða mögulega eftirmenn og er Kieran McKenna meðal þeirra sem eru efstir á lista.
Bournemouth stendur því frammi fyrir mikilvægu verkefni að finna nýjan stjóra fyrir næsta tímabil.