

Aston Villa fylgist grannt með markverðinum James Trafford þar sem félagið íhugar að hlusta á tilboð í Emiliano Martinez í sumar.
Trafford gekk til liðs við Manchester City síðasta sumar en hefur átt erfitt uppdráttar eftir komu Gianluigi Donnarumma, sem ýtti honum niður í varamannshlutverk. Hinn 23 ára gamli markvörður lék sinn fyrsta landsleik fyrir England nýverið, en hefur aðeins spilað 270 mínútur í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu.
Á sama tíma virðist framtíð Martinez hjá Villa óviss. Argentínumaðurinn hefur áður lýst yfir áhuga á að yfirgefa félagið og var orðaður við Atletico Madrid og Manchester United síðasta sumar.
Villa keypti Martinez árið 2020 fyrir um 16 milljónir punda og gæti sala hans hjálpað félaginu að uppfylla fjárhagsreglur ensku úrvalsdeildarinnar og UEFA.
Markvörðurinn er jafnframt einn af hæst launuðu leikmönnum liðsins og sala hans myndi létta á launakostnaði félagsins.