

OnlyFans-stjarnan Belle Olivia vakti athygli þegar hún hvatti eiginkonur og kærustur knattspyrnumanna til að fylgjast betur með hvað þeir gerðu á netinu.
Belle, sem hefur slegið í gegn með djörfu efni sínu, segist hafa sannanir fyrir því að þeir séu ekki allir sem þeir eru séðir, að frægir knattspyrnumenn hafi oft samband við sig.
„Mér finnst ógeðslegt hvað margir knattspyrnumenn sem eiga konur eða kærustur tala við mig. Þeir kaupa aðgang að efninu mínu og biðja mig um að senda sér persónulega. Þetta fer á það stig að ég veit hvað þeir heita og þegar ég fletti þeim upp eiga þeir gjarnan kærustu eða eiginkonu og börn,“ segir Belle.
„Ég veit að ég er nánast í kynlífsbransanum en það sem þeir gera fer langt yfir strikið. Þeir eru ekki heiðarlegir við maka sína. Sumir þeirra segjast vilja gera hluti sem þeir fá ekki frá eiginkonu sinni en það er alls ekki sanngjarnt gagnvart þeim. Ég vil ekki sundra fjölskyldum en ég vil að makar leikmanna setji þeim skýrar reglur. Þær þurfa til dæmis að fá að vita aðgangsorð hjá mönnum sínum, fletta upp vafrasögunni þeirra og fá að vita vita hvar þeir eru.“