fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Er svekktur með að hafa gengið í raðir City síðasta sumar – Brotin loforð

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 16. febrúar 2026 17:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

James Trafford, markvörður Manchester City, hefur opnað sig um endurkomu sína til félagsins og viðurkennt að hlutirnir hafi ekki þróast eins og hann bjóst við.

Trafford, sem er uppalinn hjá City, sneri aftur til félagsins síðasta sumar í 27 milljóna punda félagaskiptum frá Burnley. Hinn 23 ára gamli markvörður valdi City fram yfir Newcastle eftir að hafa fengið þau skilaboð að hann yrði aðalmarkvörður liðsins, þar sem Ederson var á förum.

Staðan breyttist hins vegar þegar Gianluigi Donnarumma var fenginn til félagsins á lokadegi félagaskiptagluggans. Síðan þá hefur Trafford að mestu setið á bekknum.

Hann fékk sjaldgæft tækifæri í byrjunarliði um helgina þegar City vann 2-0 sigur á Salford City í enska bikarnum. Eftir leikinn viðurkenndi hann ákveðin vonbrigði.

„Það var gaman að spila, en þetta er ekki alveg það sem ég bjóst við fyrir tímabilið,“ sagði Trafford.

„Ég reyndi að búa mig undir allar aðstæður, en þetta er raunveruleikinn. Í hvert skipti sem ég fæ að spila verð ég að gera mitt besta og halda áfram að bæta mig.“

Hann tók þó hrósi fyrir góðar markvörslur með ró. „Við æfum á hverjum degi. Að verja skot er einfaldlega skemmtilegt.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Rekinn korter í HM

Rekinn korter í HM
433Sport
Í gær

Opnar sig um að mjög frægur maður hafi heimtað nektarmynd – Tengdist loforði sem hún hafði gefið

Opnar sig um að mjög frægur maður hafi heimtað nektarmynd – Tengdist loforði sem hún hafði gefið
433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Í gær

Chelsea fær ansi góðar fréttir

Chelsea fær ansi góðar fréttir
433Sport
Fyrir 2 dögum

Svarar fyrir framtíð Mason Mount eftir síðasta leik

Svarar fyrir framtíð Mason Mount eftir síðasta leik
433Sport
Fyrir 2 dögum

Fengu leyfi til að fara á fyllerí í gær – Gæti haft áhrif í fallbaráttu deildarinnar

Fengu leyfi til að fara á fyllerí í gær – Gæti haft áhrif í fallbaráttu deildarinnar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra