fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Hraunaði yfir blaðamann – „Slímugt og huglaust sníkjudýr“

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 3. febrúar 2026 12:00

James McClean.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

James McClean neitaði að svara spurningum frá einum blaðamanni eftir að hann lék sinn fyrsta leik fyrir Derry City um helgina.

McClean, sem er fæddur í Derry, gekk til liðs við uppeldisfélag sitt í síðasta mánuði og hjálpaði liðinu til sigurs gegn Shamrock Rovers.

Eftir leikinn neitaði þessi 36 ára gamli kantmaður, sem hefur til að mynda leikið með Sunderland, WBA og Stoke á ferlinum, að mæta á blaðamannafund, að eigin sögn vegna nærveru blaðamannsins Paul Rowan.

McClean fór þó í viðtöl við fjölmiðla og útskýrði ákvörðun sína síðar á Instagram. Þar sakaði hann Rowan um að hafa reynt að fá hann og þáverandi landsliðsþjálfara Írlands, Martin O’Neill, í bann árið 2017 vegna ummæla eftir landsleik.

McClean kallaði blaðamanninn meðal annars „slímugt og huglaust sníkjudýr.“ Rowan hefur ekki svarað ásökununum beint, en staðfesti í umfjöllun sinni að McClean hafi neitað að svara spurningum vegna ágreinings þeirra á milli.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Myndband af leikmanni Arsenal beint eftir tapið í gær vekur athygli

Myndband af leikmanni Arsenal beint eftir tapið í gær vekur athygli
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Ógeðfelldar frásagnir: Sakaður um að brjóta á drengjum í starfi sínu – Kom sér í stöðu sjúkraþjálfara til að komast nær þeim

Ógeðfelldar frásagnir: Sakaður um að brjóta á drengjum í starfi sínu – Kom sér í stöðu sjúkraþjálfara til að komast nær þeim
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir leikmenn hafa rætt við KSÍ um mætinguna – „Þetta hefur ekki gerst að sjálfu sér“

Segir leikmenn hafa rætt við KSÍ um mætinguna – „Þetta hefur ekki gerst að sjálfu sér“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Rak upp stór augu yfir fréttum af frænda sínum Gylfa Þór – „Fór í kaffi til hans þremur dögum fyrr og þá gat hann varla gengið“

Rak upp stór augu yfir fréttum af frænda sínum Gylfa Þór – „Fór í kaffi til hans þremur dögum fyrr og þá gat hann varla gengið“
433Sport
Fyrir 2 dögum

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt