fbpx
Miðvikudagur 30.júlí 2025
433Sport

Þorsteinn segir frá erfiðu símtali sem hann þurfti að taka í gær – „Við urðum að taka þá leiðinlegu ákvörðun“

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 13. júní 2025 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Emilía Kiær Ásgeirsdóttir var ekki valinn í íslenska landsliðshópinn fyrir EM í Sviss vegna meiðsla, en hópurinn var opinberaður í dag. Landsliðsþjálfaranum þótti sárt að tilkynna henni þetta.

Emilía, sem er á mála hjá RB Leipzig í Þýskalandi, er að glíma við meiðsli sem hún nær sér ekki af í tæka tíð fyrir mót. Því var haldið opnu allt þar til á síðustu stundu, hvort hún yrði með eða ekki.

Emilía í baráttunni. Getty Images

„Hún var mesta spurningamerkið, varðandi hvort hún yrði klár eða ekki. Eftir skoðanir og annað var þetta ekki gerlegt. Við urðum að taka þá leiðinlegu ákvörðun að tilkynna henni að þetta væri ekki hægt og að hún kæmist ekki með,“ sagði Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari við 433.is í dag.

Hann þurfti að taka nokkur erfið símtöl vegna valsins og heyrði hann í Emilíu í gær.

„Erfiðasta símtalið var við Emilíu sjálfa. Hin símtölin voru auðvitað erfið en þau eru samt mikilvæg. Það skiptir máli að geta sagt þetta við leikmenn persónulega, að minnsta kosti í símtali.“

video
play-sharp-fill
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Íslenskir dómarar um alla Evrópu

Íslenskir dómarar um alla Evrópu
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Sádarnir vilja stórstjörnuna

Sádarnir vilja stórstjörnuna
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Leikmaður United opnar sig um ástandið í klefanum síðustu ár og kemur með djarfa spá fyrir tímabilið

Leikmaður United opnar sig um ástandið í klefanum síðustu ár og kemur með djarfa spá fyrir tímabilið
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Frá Liverpool til Bayern á meira en tíu milljarða

Frá Liverpool til Bayern á meira en tíu milljarða
433Sport
Í gær

Baunar á fjölmiðla og framkomu þeirra í garð tánings: Gerði allt vitlaust á 18 ára afmælinu – ,,Sorglegt að lesa þetta“

Baunar á fjölmiðla og framkomu þeirra í garð tánings: Gerði allt vitlaust á 18 ára afmælinu – ,,Sorglegt að lesa þetta“
433Sport
Í gær

Telur að Tottenham sé ‘of lítið lið’ fyrir sig

Telur að Tottenham sé ‘of lítið lið’ fyrir sig
433Sport
Í gær

KR-ingar vilja ekki tjá sig frekar um brottreksturinn

KR-ingar vilja ekki tjá sig frekar um brottreksturinn
433Sport
Í gær

Skrifar undir þriggja ára samning í Danmörku

Skrifar undir þriggja ára samning í Danmörku
Hide picture