fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Bókaði fund með stjörnunni og sendi hann á ódýran pítsastað – ,,Ég vissi um leið að við gætum ekki unnið saman“

Victor Pálsson
Sunnudaginn 8. júní 2025 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það eru ekki allir sem geta sagt frá því að hafa fundað með goðsögninni Roy Keane sem lék lengi fyrir Manchester United.

Mido, fyrrum leikmaður Tottenham, er þó einn af þeim en Keane hafði áhuga á að fá sóknarmanninn til Sunderland árið 2006.

Mido sem er frá Egyptalandi var alls ekki hrifinn af vinnubrögðum Keane sem bauð stjörnunni upp á mat á ódýrum pítsastað.

Harðhausinn Keane hafði lítið að segja á þessum stutta fundi sem þeir áttu saman og var Mido ekki lengi að taka ákvörðun um það að hann myndi ekki ganga í raðir Sunderland og spila fyrir Írann.

,,Umboðsmaðurinn minn sagði við mig að Roy Keane hefði áhuga á því að ræða saman yfir hádegismat og sýna mér æfingasvæðið,“ sagði Mido.

,,Ég ákvað því að fljúga til Newcastle og hann sótti mig á sínum Range Rover. Ég fór svo til Sunderland og hann bauð mér mat á Pizza Express.“

,,Ég var svo hissa því hann sagði í raun ekki neitt. Yfirleitt þegar þú býður leikmanni í hádegismat þá reynirðu að sannfæra hann um að koma til félagsins en hann var svo hljóðlátur.“

,,Ég vissi um leið að það væri ekki möguleiki að við gætum unnð saman, þetta hefði endað með slagsmálum. Þegar hann talaði við mig starði hann á loftið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Rekinn korter í HM

Rekinn korter í HM
433Sport
Í gær

Opnar sig um að mjög frægur maður hafi heimtað nektarmynd – Tengdist loforði sem hún hafði gefið

Opnar sig um að mjög frægur maður hafi heimtað nektarmynd – Tengdist loforði sem hún hafði gefið
433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Í gær

Chelsea fær ansi góðar fréttir

Chelsea fær ansi góðar fréttir
433Sport
Fyrir 2 dögum

Svarar fyrir framtíð Mason Mount eftir síðasta leik

Svarar fyrir framtíð Mason Mount eftir síðasta leik
433Sport
Fyrir 2 dögum

Fengu leyfi til að fara á fyllerí í gær – Gæti haft áhrif í fallbaráttu deildarinnar

Fengu leyfi til að fara á fyllerí í gær – Gæti haft áhrif í fallbaráttu deildarinnar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra