Eins og greint var frá fyrr í dag hafa æðstu menn Manchester United látið Mason Greenwood vita að hann eigi ekki afturkvæmt til félagsins þegar lánsdvöl hans hjá Getafe er lokið. United er sagt hafa ákveðið verðmiða fyrir næsta sumar þegar félagið ætlar sér að selja hann.
Eins og flestir vita hefur Greenwood ekki spilað fyrir United síðan í byrjun síðasta árs en hann var ákærður fyrir tilraun til nauðgunar, stjórnandi hegðun og líkamsárás, allt gegn fyrrverandi kærustu sinni Harriet Robson.
Öll mál gegn honum voru hins vegar látin niður falla síðasta vetur.
United hélt innanbúðarrannsókn um málið en að henni lokinni var ákveðið að Greenwood skildi leita annað.
Hann var lánaður til Getafe á Spáni í sumar en eftir góða byrjun þar fór af stað umræða um að hann gæti snúið aftur til United næsta sumar.
Samkvæmt nýjustu fréttum hefur honum hins vegar verið tjáð af United að svo verði ekki.
Samningur Greenwood við enska félagið rennur ekki út fyrr en 2025 og þarf það því að finna kaupanda eða lána hann á ný næsta sumar það sem eftir er af samningi hans.
Verði Greenwood seldur er talið að United vilji um 20-25 milljónir evra fyrir hann.
Sjálfur er Greenwood mjög ánægður í herbúðum Getafe og opinn fyrir því að vera þar áfram.