Al-Hilal Í Sádí Arabíu hefur staðfest að fremra krossbandið sé slitið hjá Neymar, hann varð fyrir meiðslum í landsleik með Brasilíu í gær.
Neymar verður frá í hið minnsta 6 mánuði og líklega lengur vegna þess.
Al-Hilal keypti Neymar frá PSG og var honum ætlað að verða ein af stjörnum deildarinnar í Sádí Arabíu, af því verður ekki á næstunni.
Liðið mætti Úrúgvæ í undankeppni HM og tapaði 2-0 í kjölfarið á svekkjandi jafntefli gegn Venesúela á dögunum.
Það var í lok fyrri hálfleiks sem Neymar virtist meiðast illa á hné og fór hann grátandi af velli.
Neymar injury 💔💔
It's look like ACL 😢😢#Neymar #BRAXURU #نيمارpic.twitter.com/BP1ShAFYRp
— FAISAL RSL (@SaudiPLf) October 18, 2023
Neymar leaving the stadium.
Even after such a horrible injury, he still makes time for a young fan. pic.twitter.com/xZ5sCurrhQ
— Neymoleque | Fan 🇧🇷 (@Neymoleque) October 18, 2023