Ísland vann Liechtenstein 4-0 í undankeppni EM 2024 á mánudag. Landinn var að vonum ánægður með liðið, flestir í hið minnsta.
Færsla Harðar Ágústssonar á Twitter (X) hratt hins vegar af stað heitum umræðum.
„Gæði, og fleira. Takk,“ skrifaði Hörður um leikinn. Hildur Lillendahl, verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg, setti þrjú spurningaverkefni við færsluna og útskýrði Hörður að hann væri að hrósa frammistöðu Hákonar Arnars Haraldssonar landsliðsmanns í leiknum.
Hildur tók þá til máls á ný. „Nej stop nu. Efast ekki um að þessi drengur sé að spila góðan fótbolta en þarna eru að spila amk tveir menn sem þú hefur ríka ástæðu til að telja að séu ofbeldismenn. Þetta er ekki samstaða með þolendum. Hvorki þeirra né annarra.“
Nej stop nu. Efast ekki um að þessi drengur sé að spila góðan fótbolta en þarna eru að spila amk tveir menn sem þú hefur ríka ástæðu til að telja að séu ofbeldismenn. Þetta er ekki samstaða með þolendum. Hvorki þeirra né annarra.
— Hildur ♀ 🇵🇸 🇺🇦 🏳️⚧️ (@hillldur) October 16, 2023
Sóley Tómasdóttir, fyrrum borgarfulltrúi, lét sitt ekki eftir liggja. „Ég veit um þolendur sem eru í miklum sárum núna og þurfa alls ekkert á því að halda að góði twitter hampi landsliðinu. Jafnvel þó þeir hafi ekki allir verið kærðir fyrir ofbeldi. Það má alveg hafa það í huga.“
Frosti vekur athygli á þessu í Harmageddon á Brotkast.is.
„Hann leyfir sér að mæra knattspyrnuna sem við sáum spilaða á Laugardalsvelli,“ segir Frosti um færslu Harðar. „Hörður skeit í rjómann og fékk mínusstig frá góðum vinkonum sínum. Topparnir komu og slógu heldur betur á fingurna á honum.
Greyið Hörður. Við bjóðum hann velkominn í vondu kalla klúbbinn. Hann er alveg kominn þangað núna, er að styðja landsliðið, þvílík synd.“
Frosti tók einnig fyrir færslur Þorsteins V. Einarssonar, umsjónarmann Karlmennskunnar.
„Áhugavert hvaða týpur eru skyndilega haldnar tjáningarþörf um afrek karlalandsliðsins. Jú, akkúrat þær sem vanda sig við að hafa versta take-ið í öllum málum alltaf. Og láta siðferði ekki þvælast fyrir sér,“ skrifaði Þorsteinn á Twitter er hann vakti athygli á færslum Frosta og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar um íslenska landsliðið.
Áhugavert hvaða týpur eru skyndilega haldnar tjáningarþörf um afrek karlalandsliðsins. Jú, akkúrat þær sem vanda sig við að hafa versta take-ið í öllum málum alltaf. Og láta siðferði ekki þvælast fyrir sér. pic.twitter.com/h9D1DEZeAD
— Þorsteinn V. á bláhimni (@thorsteinnv__) October 16, 2023
„Þorsteinn gjörsamlega brann yfir vegna stuðnings fólks við íslenska landsliðið,“ segir Frosti.
„Hann vill meina það að landsliðið eigi að skammst sín og fólk eigi ekki að styðja við landsliðið af því einhverjar ásakanir voru settar fram á staka landsliðsmenn.
Það hlýtur að vera mikil vanlíðan þarna að baki. Hann er náttúrulega karlremba í bata. Hann hefur áttað sig á því að það að hætta að vera karlremba og að taka þriðju vaktina tekur sinn toll,“ segir Frosti að endingu.
Brotið úr þætti hans um þetta má sjá hér að neðan.