Mason Greenwood framherji Manchester United sem er í láni hjá Getafe á Spáni hefur farið vel af stað í nýju umhverfi.
Manchester United tók þá ákvörðun í sumar að Greenwood myndi ekki spila aftur fyrir félagið. Er það vegna rannsóknar lögreglu á meintu ofbeldi hans í nánu sambandi.
Greenwood var undir rannsókn í rúmt ár en málið var fellt niður hjá lögreglu eftir að vitni breyttu framburði sínum og ný gögn litu dagsins ljós.
Greenwood hefur farið vel af stað á Spáni og segja fréttir þar í landi í dag að Sevilla skoði það að kaupa hann næsta sumar.
Spænskir miðlar segja einnig að þrátt fyrir áhuga þeirra hafi hann mestan áhuga á því að ganga endanlega í raðir Getafe þar sem honum hefur verið vel tekið eftir mjög erfiða tíma.