fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
433Sport

United skellir þessum verðmiða á Maguire

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 17. júlí 2023 17:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester United vill fá 20 milljónir punda fyrir Harry Maguire ef félagið á að selja hann í sumar.

Að auki myndi United spara sér um 20 milljónir punda í laun ef Maguire færi í sumar.

Maguire var í gær sviptur fyrirliðabandinu hjá United sem hann hefur borið í rúm þrjú ár.

Erik ten Hag vill ekki að Maguire sé með bandið enda virðist hann ekki í neinum plönum þjálfarans.

Talið er næsta víst að Bruno Fernandes fái bandið en Maguire er sagður afar óhress með ákvörðunina.

Ensk blöð segja að þessi ákvörðun hafi orðið til þess að Maguire vilji nú fara og eru West Ham, Chelsea, Tottenham og fleiri lið sögð skoða málið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Furðar sig á viðhorfi RÚV og spyr sig hvort hugsað sé út í eldra fólk

Furðar sig á viðhorfi RÚV og spyr sig hvort hugsað sé út í eldra fólk
433Sport
Í gær

United skoðar að endurfjármagna lán sín – Skulda 58 milljarða

United skoðar að endurfjármagna lán sín – Skulda 58 milljarða