fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
433Sport

Líkur á að Arsenal gefi Wilshere samning

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 14. september 2021 10:30

Jack Wilshere.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jack Wilshere miðjumaðurinn knái er mögulega að ganga aftur í raðir Arsenal. Hann hefur verið án félags frá því í upphafi sumars.

Wilshere er 29 ára gamall en hann ólst upp hjá Arsenal. Wilshere yfirgaf Arsenal sumarið 2018 og gekk í raðir West Ham.

Hjá West Ham fann Wilshere ekki takt sinn og gekk þá í raðir Bournemouth.

Wilshere hefur ekki verið eftirsóttur biti í sumar en Arsenal skoðar það að semja við hann, hann gæti því verið til taks ef meiðsli koma upp.

Wilshere fékk boð um að æfa með Arsenal og tók því. „Ég á von á því að ræða við einhvern hjá félaginu á næstu dögum,“ sagði Wilshere um stöðu mála.

Sú staðreynd að Wilshere er án félags gefur Arsenal tækifæri á að semja við hann og skrá hann í hóp sinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Segir fólk í Garðabænum skiptast í fylkingar – „Það er enginn millivegur“

Segir fólk í Garðabænum skiptast í fylkingar – „Það er enginn millivegur“
433Sport
Í gær

Ræddi lygilega atburðarás í Kópavogi – „Engin gæsla og menn fóru að skiptast á höggum“

Ræddi lygilega atburðarás í Kópavogi – „Engin gæsla og menn fóru að skiptast á höggum“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Eru með verðmiða í huga og ætla ekki í neitt stríð ef það verður

Eru með verðmiða í huga og ætla ekki í neitt stríð ef það verður
433Sport
Fyrir 2 dögum

Tveir á blaði til að fylla í skarð Glasner í sumar

Tveir á blaði til að fylla í skarð Glasner í sumar