fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
433Sport

Fleiri enskar knattspyrnustjörnur skitu upp á bak – Vændiskonur, partý og árekstur

Máni Snær Þorláksson
Sunnudaginn 13. september 2020 20:00

n - Mynd: Fréttablaðið/Anton Brink

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í vikunni greindi 433 frá því að landsliðsmennirnir tveir í enska landsliðinu, þeir Phil Foden og Mason Greenwood, hefðu boðið þeim Láru Clausen og Nadíu Sif Líndal upp á hótelherbergi til sín. Fréttirnar vöktu heimsathygli, enda eru þeir Foden og Greenwood heimsfrægir, en þeir spila hvor með sínu stórliðinu í Manchester-borg. Þeir félagar eru þó ekki þeir fyrstu til að koma sér í vandræði í COVID-faraldrinum.

Sagði fólki að vera heima en fór sjálfur út

Stjarna Aston Villa á síðasta tímabili, Jack Grealish, hvatti fólk til þess að halda sig heima vegna kórónuveirunnar í mars, en þá var útgöngubann í Bretlandi. Grealish var þó greinilega ekki að hlusta á sjálfan sig, þar sem hann fór sjálfur út daginn eftir. Ekki nóg með það að hann hafi brotið reglur útgöngubannsins þá klessti hann líka glæsilega Range Rover bifreið sína. Götublöðin á Englandi sögðu að Grealish hefði klesst á tvo kyrrstæða bíla eftir að hafa verið í gleðskap hjá Ross McCormack, fyrrum liðsfélaga sínum hjá Astona Villa.

Fjölmiðlamaðurinn Piers Morgan hraunaði yfir Grealish á sjónvarpsstöðinni ITV eftir fréttirnar. „Hann var að gera rétt þangað til hann ákvað að heimsækja vini sína í gleðskap, hvað er hann að hugsa? Hvað varð um að vera skynsamur?“ sagði Piers Morgan. „Það hjálpar ekki ástandinu þegar stjarna í enskum fótbolta, brýtur reglurnar. Hann er fyrirmynd, skammastu þín drengur.“

Grealish þurfti að horfast í augu við afleiðingar hegðunar sinnar. Hann baðst afsökunar á hegðun sinni á samfélagsmiðlum sínum en afsökunarbeiðnin dugði þó ekki til ein og sér. Hann þurfti einnig að borga 150 þúsund pund í sekt til Aston Villa, en það eru rúmar 27 milljónir í íslenskum krónum. Félagið sagði að öll sektin myndi renna til góðgerðarmála.

Bauð vændiskonum heim

Kyle Walker, leikmaður enska landsliðsins og Manchester City, játaði í mars að hafa keypt þjónustu hjá vændiskonum á meðan útgöngubann var í gildi í Bretlandi. Reglurnar voru skýrar um að ekki mætti bjóða fólki heim til sín, en Walker ákvað þrátt fyrir það að fá tvær vændiskonur heim til sín á þriðjudagskvöldi. Walker borgaði þeim Louise McNamara og ónefndri brasilískri konu samtals 2.200 pund fyrir heimsóknina. Það eru rúmlega 400 þúsund íslenskar krónur.

Walker sá eftir þessu og sendi frá sér yfirlýsingu eftir að greint var frá þessu. „Ég vil biðjast afsökunar á þeim ákvörðunum sem ég tók í síðustu viku. Ég skil að í stöðu minni sem atvinnumaður, þá ber ég ábyrgð og er fyrirmynd,“ sagði Walker í yfirlýsingunni. „Ég vil biðja fjölskyldu mína, vini, fótboltafélagið mitt og alla afsökunar, á að hafa brugðist þeim.“

Svo virðist þó vera sem Walker hafi ekki lært af þessum mistökum en snemma í maí braut hann aftur reglur útgöngubannsins, ekki bara einu sinni í þetta skiptið heldur þrisvar sinnum á einum degi. Walker heimsótti systur sína, svo foreldra sína og loks fyrrverandi eiginkonu sína og börn.

„Ég tel mig ekki hafa neinn annan kost en að tjá mig eftir frétt dagsins,“ sagði Walker eftir þetta. „Ég hef farið í gegnum erfiðasta kafla lífs míns undanfarið, ég tel að ég verði að tjá mig. Þetta hefur ekki bara áhrif á mig, þetta hefur áhrif á heilsu fjölskyldu minnar og barnanna minna. Ég fór á miðvikudag í heimsókn til systur minnar með afmæliskort, ég vildi líka ræða við aðila sem ég treysti. Hún faðmaði mig, hvað átti ég að gera? Ég fór svo til foreldra minna til að sækja mat. Þetta hefur verið erfitt fyrir þau. Hvað hafa þau gert til að vera birt í fjölmiðlum?“

Hélt risastórt partý

Fyrrum knattspyrnumaðurinn Paul Scholes hélt risastórt partý fyrir son sinn á heimili sínu í Oldham á Englandi, daginn sem útgöngubann var sett á aftur í borginni í ágúst. Paul Scholes, sem spilaði með Manchester United allan sinn feril, hélt upp á afmæli Arron Scholes, sonar síns, í ágúst en Arron var að fagna 21 árs afmæli sínu. Í myndböndum sem tekin voru upp í veislunni má sjá að fólkið þar hugsaði lítið um sóttvarnaviðmið á meðan það drakk áfengi og dansaði. Veislan hélt áfram fram á nótt, á sama tíma og milljónum manna á sama svæði var bannað að koma saman í eigin húsum.

Partýið vakti hörð viðbrögð þar í landi, en til að mynda sagði þingmaðurinn Andrew Bridgen að Scholes væri að setja virkilega lélegt fordæmi. „Ég bjóst við að fyrirmynd sem spilaði 66 leiki með Englandi myndi sýna meiri ábyrgð. Fólkið í Oldham gerir sér fulla grein fyrir því að svona ábyrgðarlaus hegðun er ástæðan fyrir því að útgöngubann var sett á aftur.“

Fólk sem býr í Oldham tjáði sig einnig um málið í fjölmiðlum þar í landi. „Fjölskyldan hefur verið að skipuleggja þetta í margar vikur. Upphaflega átti veislan að fara fram á hóteli en þau þurftu að hætta við það. Skömmu síðar fór orðrómur af stað um að veislan yrði haldin heima hjá þeim frekar. Þetta er brjálæði, þau hunsuðu allar reglur bara því þau vildu halda veisluna.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Hrafnkell telur að margir sérfræðingar hafi „prjónað yfir sig“

Hrafnkell telur að margir sérfræðingar hafi „prjónað yfir sig“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Segja Zidane nálægt því að taka að sér óvænt starf

Segja Zidane nálægt því að taka að sér óvænt starf
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Ten Hag útilokar það að Sancho spili fyrir sig aftur

Ten Hag útilokar það að Sancho spili fyrir sig aftur
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Nýr þáttur af Íþróttavikunni kominn út – Axel Óskar er gestur

Nýr þáttur af Íþróttavikunni kominn út – Axel Óskar er gestur
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Lögreglan hefur heimsótt heimili hans fjórum sinnum á þremur dögum – „Velkomin til Norður-Kóreu“

Lögreglan hefur heimsótt heimili hans fjórum sinnum á þremur dögum – „Velkomin til Norður-Kóreu“
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum
Hartman í Val
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Carlo Ancelotti brast í grát þegar þetta var að gerast

Carlo Ancelotti brast í grát þegar þetta var að gerast
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Nagelsmann hafnar Bayern og heldur áfram í sama starfi

Nagelsmann hafnar Bayern og heldur áfram í sama starfi
433Sport
Í gær

Högg í maga enskra stórliða

Högg í maga enskra stórliða
433Sport
Í gær

Enska úrvalsdeildin segir skilið við það sem Klopp hefur talað fyrir

Enska úrvalsdeildin segir skilið við það sem Klopp hefur talað fyrir