Liverpool tapaði sínum fyrsta leik í langan tíma í kvöld er liðið mætti Atletico Madrid í Meistaradeildinni.
Um var að ræða fyrri leik liðanna af tveimur í 16-liða úrslitum en spilað var á heimavelli Atletico, Wanda Metropolitano.
Aðeins eitt mark var skorað í leik kvöldsins en það gerði Saul fyrir Atletico eftir fjórar mínútur.
Liverpool var 68 prósent með boltann í leiknum en átti ekki skot á mark Atletico allar 90 mínúturnar.
Á sama tíma áttust við Paris Saint-Germain og Borussia Dortmund en spilað var í Þýskalandi.
Þar hafði Dortmund betur með tveimur mörkum gegn einu og var ungstirnið Erling Haaland í stuði.
Haaland gerði bæði mörk Dortmund í sigrinum en mark franska liðsins skoraði Neymar til að jafna metin í 1-1.
Það er því allt undir í seinni leikjum þessara liða sem fara fram í næsta mánuði.
Atletico Madrid 1-0 Liverpool
Dortmund 2-1 PSG
1-0 Erling Haaland(69′)
1-1 Neymar(75′)
2-1 Erling Haaland(77′)
Atletico Madrid 1-0 Liverpool
1-0 Saul(4′)