

Roberto Mancini hefur verið ráðinn nýr þjálfari ítalska landsliðsins. Þetta var staðfest nú rétt í þessu.
Mancini tekur við keflinu af Giampiero Ventura sem var rekinn eftir slæmt gengi í undankeppni HM.
Ítalía mun ekki taka þátt á HM í Rússlandi og fær Mancini verðugt verkefni að rífa landsliðið aftur upp.
Mancini hefur undanfarin tvö ár stýrt liði Zenit í Rússlandi en var fyrir það hjá Inter, Galatasaray og Manchester City.
Mancini var áður ítalskur landsliðsmaður og lék á sínum tíma 36 leiki fyrir þjóð sína.