

Liverpool er í miklu stuði þessa dagana og liðið átti ekki í nokkrum vandræðum með Newcastle í kvöld.
Liðin mættust á Anfield en Rafa Benitez mætti þá með lærisveina á sinn gamla heimavöll.
Liverpool var sterkari á öllum sviðum fótboltans í kvöld og vann 2-0 sigur.
Mohamed Salah skoraði mark númer 32 á tímabilinu þegar hann kom Liverpool í 1-0 í fyrri hálfleik.
Sadio Mane skoraði svo í síðari hálfleik og tryggði Liverpool 2-0 sigur og annað sætið í deildinni.
Manchester United getur endurheimt annað sætið á mánudag er liðið sækir Crystal Palace heim.