

,,Þetta var erfiður leikur, við vissum það áður en að hann hófst,“ sagði Jurgen Klopp stjóri Liverpool eftir sigur á Newcastle.
Liverpool vann 2-0 sigur á Newcastla á heimavelli en Klopp sagði eftir leik að liðið saknaði Philippe Coutinho.
,,Strákarnir voru frábærir og gerðu það sem þurfti, þetta voru tvö glæsileg mörk. Mo Salah er sóknarmaður, hann er sóknarmaður en ekki maður sem heldur. Hann elskar að skora.“
,,Við vonuðumst eftir svona frammistöðu eftir að Coutinho fór en hann er heimsklassa leikmaður og við söknum hans.“