

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool var mættur á blaðamannafund í hádeginu þar sem hann ræddi leik liðsins gegn Tottenham um helgina.
Liverpool tekur á móti Tottenham í stórleik ensku úrvalsdeildarinnar á sunnudaginn klukkan 16:30.
Bæði lið eru í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti en Liverpool er í þriðja sæti deildarinnar með 50 stig en Tottenham er í fimmta sætinu með 48 stig.
Jamie Carragher, fyrrum leikmaður sagði á dögunum að Virgil van Dijk, nýjasti leikmaður Liverpool mætti alveg við því að missa nokkur kíló og þá setti hann spurningamerki við leikform varnarmannsins.
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool var spurður út í þessi ummæli Carragher á blaðamannafundi í dag.
„Ég er viss um að Jamie megi alveg við því að missa nokkur kíló, þetta er ekki vandamál,“ sagði Klopp léttur.