Malt og Appelsín virðist vera órjúfanlegur partur af jólum margra Íslendinga og sumir drekka jafnvel ekki þessa blöndu nema bara á jólum.
Hins vegar eru skiptar skoðanir um nákvæmlega hvernig á að blanda þetta vinsæla jólaöl. Sumir halda því fram að meira af Malti eigi að vera í blöndunni á meðan aðrir halda því fram að Appelsín verði að vera í meirihluta.
Okkar spurning er hins vegar mjög einföld – hvor drykkurinn fer á undan í glasið þegar að jólaölið er blandað?
Takið þátt í skoðanakönnun matarvefs DV og útkljáum þetta mál í eitt skipti fyrir öll.