fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Leiðari

Gunnar Bragi: „Þetta er algjör þvæla og mér þykir leitt að þú ætlir að fara snúa þessu upp í svona rugl“

Kristjón Kormákur Guðjónsson
Föstudaginn 30. nóvember 2018 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Mér finnst óskaplega skítlegt af þér sem fjölmiðlamanni að ætla að fara nýta þér það, fyrir utan að snúa út úr því líka. Þetta er algjör þvæla og mér þykir leitt að þú ætlir að fara snúa þessu upp í svona rugl því að menn verða nú að geta sest niður til að hafa gaman, en þetta var mjög skemmtilegt hins vegar.“

Þetta hafði Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Miðflokksins, að segja þegar DV óskaði fyrst eftir viðbrögðum við því að blaðið hefði undir höndum upptökur þar sem hann og fimm aðrir þingmenn, þar á meðal Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, sátu að sumbli og létu þung orð falla um fjölda fólks. Þá stóðu þingmennirnir í margs konar baktjaldamakki sem hingað til hefur farið fram í lokuðum reykfylltum bakherbergjum. Meðal annars ótrúlegri fléttu í tengslum við þá ákvörðun að skipa Geir H. Haarde sendiherra. Þar skipaði Gunnar Bragi, að eigin sögn, „fávita“ í sendiherraembætti til þess að draga athyglina frá skipun Geirs. Taldi Gunnar Bragi að leikfléttan myndi tryggja honum sjálfum sendiherraembætti í framtíðinni. Upptökurnar voru teknar upp án vitundar þingmanna þar sem þeir drukku áfengi á sama tíma og þeir áttu að vera í vinnunni. Gunnari Braga fannst illa að sér vegið og almenningi kæmi ekki við hvað hefði átt sér stað þetta kvöld. Þetta væri þeirra einkalíf og hvert annað fyllerí þar sem slegið er á létta strengi.

Og það var fyrsta spurningin sem ritstjórn DV spurði sig að? Fljótlega lá svarið fyrir. Ritstjórn DV gætir þess að virða einkalíf þingmanna en þarna vógu almannahagsmunir þyngra. Í raun er þessi leki ekki ósvipaður Panamaskjölunum sem felldi heila ríkisstjórn. Fólkið í landinu á rétt á því að vita ef kjörinn fulltrúi talar í opnu rými um baktjaldamakk, þegar reynt er að leggja á ráðin um að kljúfa stjórnmálaflokk, þar sem talað er á skelfilegan hátt um konur, fatlaða og útlendinga og þá með þeim hætti að erfitt var að hafa það eftir. Þingmenn eiga að umgangast þetta embætti af virðingu og, eins og forsætisráðherra sagði, hefur þetta áhrif á virðingu íslenskra stjórnmála.

Þjóðin sjálf er slegin vegna þessara upplýsinga. Á Alþingi ríkir sorg og starfsmenn þingsins sem og þingmenn eru niðurlútir og sorgmæddir. Líklegt er að málinu ljúki á næstu dögum. Þá þurfa þingmenn að draga lærdóm af þessari ótrúlegu atburðarás. Ábyrgðin liggur fyrst og fremst þar. Það á að gefa fólki tækifæri á ný og gefa því færi á að bæta sig. En ætli einstaka þingmenn sér ekki að horfast í augu við veruleikann, taka sig á, biðjast afsökunar eða segja af sér þá þarf þjóðin að láta þá sæta ábyrgð í næstu kosningum.

Gunnar Bragi var eins og áður segir ósáttur. Hann var reiður blaðamanni DV og átti vart orð yfir að manneskja hefði tekið samtal þingmannanna upp. Eftir að DV birti sínar fyrstu fréttir mátti sjá afar lítinn hóp taka undir þetta og vildi skjóta sendiboðann sem kom þessum sögulegu upplýsingum á framfæri. En það er þessari manneskju að þakka að þjóðin hefur fengið að líta inn í reykfyllt bakherbergi stjórnmálanna og enn eimir af hinum gömlu, ljótu vinnubrögðum á þingi. Sá sem lak upplýsingunum til DV kallaði sig Marvin og taldi samræður þingmannanna eiga erindi við almenning. Þegar hann heyrði þingmennina hæðast að Freyju Haraldsdóttur og þingkonu Samfylkingarinnar, Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur, var honum nóg boðið. Í samtali við DV segir Marvin:

„Þá fékk ég æluna upp í háls og ákvað að hér myndi ég sitja þangað til að samtali þeirra væri lokið. Þetta væri ekki í boði í siðuðu samfélagi.“

Marvin fannst allt tal þingmannanna viðbjóðslegt og að það ætti erindi við almenning að kjörnir fulltrúar töluðu með þessum hætti. Hann var að reyna að gera gagn og það mættu sem flestir taka hann sér til fyrirmyndar. En það er engin ástæða til að enda þessi skrif með háfleygum hætti. Það er  viðeigandi að gefa Marvin lokaorðið í þessum leiðara. Einstaklingi sem hefur látið gott af sér leiða fyrir íslenskt samfélag og þó að margir eigi um sárt að binda núna mun þetta á endanum skila okkur á betri stað. Marvin segir: „Það hvarflaði aldrei að mér að ég væri að gera eitthvað ósiðlegt. Stjórnmálamenn eru í valdamiklum stöðum og hafa skyldum að gegna gagnvart okkur.“

Leiðari helgarblaðs DV

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Sjö stjórar til skoðunar hjá United – Efast um nokkra sem eru á blaði

Sjö stjórar til skoðunar hjá United – Efast um nokkra sem eru á blaði
Pressan
Fyrir 3 klukkutímum

Stillti sér upp á mynd fyrir eiginmanninn – Andartökum síðar var hún látin

Stillti sér upp á mynd fyrir eiginmanninn – Andartökum síðar var hún látin
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Villa staðfestir gleðitíðindin

Villa staðfestir gleðitíðindin
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Sjáðu athyglisvert myndband sem Óli Kalli birti – „Bara ef ég fæ að vera með Gylfa“

Sjáðu athyglisvert myndband sem Óli Kalli birti – „Bara ef ég fæ að vera með Gylfa“
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Ten Hag tapaði sér við blaðamenn í dag – „Til skammar“

Ten Hag tapaði sér við blaðamenn í dag – „Til skammar“
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Fundurinn í London gekk ekki vel

Fundurinn í London gekk ekki vel