

Í gærkvöldi var kvartað undan ölvuðum mönnum sem áreittu gangandi vegfarendur í miðborginni og voru almennt til ama og leiðinda. Annar þeirra varð á vegi lögreglunnar og var hann handtekinn og vistaður í fangageymslu enda ölvaður mjög.
Tilraun var gerð til að brjótast inn í skóla í Kópavogi um klukkan þrjú í nótt en ekki gekk það sem skyldi hjá þjófinum sem neyddist til að yfirgefa vettvang tómhentur.
Einn ökumaður var handtekinn í nótt grunaður um ölvun við akstur og annar var handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.