

Guðni Ágústsson, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra, segir að ein samgöngubót myndi breyta Íslandi til hins betra. Og það sem meira er þá myndi kostnaðurinn varla nema hærri fjárhæð en sem nemur einum bragga í Reykjavík.
Guðni segir frá því í Morgunblaðinu í dag að Kjalvegur, vegur þvert yfir hálendið, yrði frábær lausn sem myndi varða hagsmuni allra landsmanna.
„Ég hef aldrei talað fyrir Kjalvegi sem yrði opinn árið um kring, er þó Bláfellshálsinn mestur farartálminn. Þessi vegur yrði lagfærður og byggður upp með töku veggjalda sem ferðamenn myndu greiða og unninn í einkaframkvæmd. Kjalvegur hinn nýi yrði ekki þungaflutningaleið heldur ferðamannavegur,“ segir Guðni.
Guðni segir að veginum yrði lokað yfir hörðustu vetrarmánuðina, eða um þær mundir sem Reynistaðarbræður lögðu norður í Skagafjörð úr Hrunamannahreppi veturinn 1781. Guðni segir að kostnaðurinn við þessar framkvæmdir þyrfti ekki að vera ýkja mikill, að minnsta kosti ekki í samanburði við aðrar framkvæmdir á Íslandi í gegnum tíðina.
„Kjalvegur er sennilega jafn gamall Íslandsbyggð, þar lá þjóðleið í gegnum aldir. Að byggja hann upp og klára veginn norður væri svona eitt „braggaverð“ í Reykjavík. Nú sjáum við, þegar dýrustu framkvæmdir Íslandssögunnar í vegagerð eru skoðaðar, Vaðlaheiðargöng og Landeyjahöfn, þótt enginn iðrist þeirra framkvæmda í dag, hversu miklir smáaurar færu í að ljúka veginum norður um Kjöl. Einungis er eftir að lagfæra 80 km leið.“
Guðni segir að vegur um Kjöl yrði mikil samgöngubót fyrir Íslendinga og þá sem heimsækja landið.
„Sumarvegur um Kjöl myndi breyta Íslandi, sem er að verða eitt stærsta ferðamannaland heimsins miðað við mannfjölda landsins. Engin rúta og engir fólksbílar eru byggð fyrir hinn harða og ófæra Kjalveg. Betri vegur myndi gera það að verkum að allir myndu elska landið sitt enn heitar á eftir. Og njóta þess að aka leiðina milli jökla og hægt væri að dreifa enn frekar ferðamönnum eftir sól og regni. Kjalvegur endurbættur er mikilvæg samgöngubót en í leiðinni einn áhugaverðasti ferðamannavegur norðan Alpafjalla.“