fbpx
Laugardagur 09.maí 2026
Fréttir

„Samkvæmt þessu ætti saksóknari að hefja rannsókn“

Einar Þór Sigurðsson
Fimmtudaginn 29. nóvember 2018 14:19

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Samkvæmt þessu ætti saksóknari að hefja rannsókn á skipan Gunnars Braga Sveinsson, þáverandi utanríkisráðherra, á Geir H. Haarde sem sendiherra í Washington gegn loforði um að Sjálfstæðisflokksmenn myndu síðar meir launa honum greiðann með sambærilegri stöðu.“

Þetta segir Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokksins, á Facebook-síðu flokksins. „Það vill nefnilega svo til að gróf spilling er lögbrot á Íslandi, þótt þess sjáist ekki mikil merki,“ bætir hann við og birtir svo skjáskot af ákvæðum laga um brot í opinberu starfi. Þar stendur:

„Ef opinber starfsmaður, [alþingismaður eða gerðarmaður] 1) heimtar, tekur við eða lætur lofa sér eða öðrum gjöfum eða öðrum ávinningi, sem hann á ekki tilkall til, í sambandi við framkvæmd starfa síns, þá skal hann sæta … 2) fangelsi allt að 6 árum, eða sektum, ef málsbætur eru.“

Vildi draga athygli frá Geir

Á upptökum sem DV fjallaði um í gærkvöldi sagðist Gunnar Bragi hafa skipað Árna Þór Sigurðsson sem sendiherra til að draga athygli frá Geir H. Haarde. Árni Þór var skipaður í Finnlandi og situr þar enn. Í kjölfarið taldi Gunnar Bragi sig eiga inni greiða hjá Sjálfstæðisflokknum, að hans biði svipuð staða síðar.

Á upptökunum heyrist Gunnar Bragi lýsa með hvaða hætti hann skipaði Geir og Árna árið 2014 þegar Gunnar Bragi var utanríkisráðherra fyrir Framsóknarflokkinn.

„Þegar ég ákvað það að skipa Geir H. Haarde sendiherra í Washington […] þá ræddi ég við Sigurð Inga. Honum var ekki skemmt enda hafði hann ákært Geir. Ég ræddi þetta auðvitað við alla flokka. Ég sá það að ég gæti ekki skipað Geir einn. Það yrði of þungur biti fyrir þingið og alla. Það sem ég gerði var að skipa Árna Þór (Sigurðsson) sem sendiherra.  Hann er náttúrulega bara […], þó hann sé frændi minn. VG hefðu getað orðið brjálaðir en Katrín sagði ekki orð. Ég átti fund með henni. Geir slapp í gegnum þetta eins og smjör á smokknum hjá honum þarna Friðriki Ómari.“

Geir sagði seinna við mig: „Ég var brjálaður við þig Gunni þegar þú ákvaðst að gera Árna Þór að sendiherra.“ Hann fattaði þetta svo seinna. Athyglin fór öll á Árna Þór. Annars hefði Vinstri Græna liðið orðið brjálað.“

Árni var náttúrulega ekkert annað en senditík Steingríms. Plottið mitt var að Geir yrði í skjólinu hjá Árna og það virkaði ekki bara 100 prósent heldur 170 prósent því að Árni fékk allan skítinn. Svo sagði Geir við mig löngu seinna: „Þakka þér fyrir. Það var enginn sem gagnrýndi mig.“ Ég lét Árna taka allan slaginn.“

Gunnar: „Ég átti fund með Bjarna í fjármálaráðuneytinu. Ég sagði við Bjarna: „Það er algjörlega sjálfsagt. Auðvitað geri ég Geir að sendiherra.“ Og ég sagði við hann: „Og mér finnst sanngjarnt að þið horfið til svipaðra hluta þegar ég þarf á því að halda.“ Það var ekki vegna þess að ég hafi verið að hugsa um að skipta um flokk. Ég var ekki kominn út þegar Þórólfur (Gíslason) hringir og spyr: „Ætlar þú að verða sendiherra?“ Ég var ekki kominn út úr ráðuneytinu.“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson staðfesti þetta svo í umræðunum:

„Út frá þessu, af því að ég veit að þetta er rétt með sendiherrastöðuna. Ég nefndi þetta við Bjarna. Bjarni má eiga það, hann viðurkenndi þetta. Bjarni fór út um víðan völl en niðurstaðan var sú að Bjarni féllst á það að ef þetta gengi eftir, þá ætti Gunnar inni hjá Sjálfstæðismönnum.“

Sagðist ekki hafa sagt satt

Í Morgunútvarpinu á RÚV í morgun sagði Gunnar Bragi að það hefði staðið til lengur að skipa Árna Þór Sigurðsson sem sendiherra en Geir. Þegar hann var spurður hvort hann ætti greiða inni hjá Sjálfstæðisflokknum, sagði Gunnar Bragi:

„Ætli það væri ekki búið að borga hann ef það væri. Ég er bara ekkert að segja satt þarna að þetta væri einhver díll. Ég get ekki svarað af hverju ég sagði það,“ sagði hann og bætti við að hann hefði getað skipað þá í sitthvoru lagi. „Ég hefði getað skipað þrjá eða fjóra, og reynt að fela Geir alveg, ef það var hugsunin. Ég verð alveg að viðurkenna það að hugsunin var svolítið sú það myndi draga úr neikvæðri umfjöllun um skipan Geirs, sem ég vissi að yrði og varð vitanlega ef þetta yrði gert með þessum hætti. Þetta snerist ekki um það að skipa Árna út af Geir heldur voru báðir mennirnir mjög hæfir,“ sagði hann.

Sendiherratign algengur bitlingur

Eins og kom fram í fréttaskýringu RÚV í morgun hafa sendiherrastöður oft verið notaðar sem einskonar útleið úr stjórnmálum. Var vísað í umfjöllun frá 2014 þar sem fram kom að þriðjungur síðustu formanna allra stjórnmálaflokka á þingi hafði orðið sendiherrar að loknum stjórnmálaferli. Þannig höfðu síðustu fjórir formenn Sjálfstæðisflokksins orðið sendiherrar eða seðlabankastjórar. Fimm af þrettán ráðherrum í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks á árunum 1991 til 1995 urðu sendiherrar. Tveir urðu seðlabankastjórar og tveir til viðbótar formenn bankaráðs Seðlabankans.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Hekla kveður Laugaveg með glæsilegri sumarsýningu

Hekla kveður Laugaveg með glæsilegri sumarsýningu
Fréttir
Í gær

Komin með ríkisborgararétt eftir hálfrar aldar búsetu á Íslandi og kostulega viðureign við Útlendingastofnun

Komin með ríkisborgararétt eftir hálfrar aldar búsetu á Íslandi og kostulega viðureign við Útlendingastofnun
Fréttir
Í gær

Innrás Ingu Sæland og Guðmundar Inga á TikTokið – „Og allir fara að hlæja að okkur“

Innrás Ingu Sæland og Guðmundar Inga á TikTokið – „Og allir fara að hlæja að okkur“
Fréttir
Í gær

Ársæll fær ekki að leiða ráðherra og aðstoðarmenn fram fyrir dómi – Þykir ekki hafa lögvarða hagsmuni

Ársæll fær ekki að leiða ráðherra og aðstoðarmenn fram fyrir dómi – Þykir ekki hafa lögvarða hagsmuni