

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður og ritari Sjálfstæðisflokksins, segir ótrúlegt hvernig þingmenn Miðflokksins og Flokk fólksins tali um samstarfskonur sínar. Hún bendir að þeir sjálfir séu ekki sigurvegarar í fegurðarsamkeppni.
„Það er auðvitað bara þeirra að svara fyrir þessi ummæli sín. Það er ótrúlegt að svona menn sem eru auðvitað sigurvegarar sjálfir í fegurðarsamkeppni séu að dæma um útlit og atgervi þingkvenna, sem þeir starfa með,“ segir Áslaug á Twitter og vísar í frétt RÚV um málið.
Líkt og DV hefur greint frá tala þingmennirnir mjög frjálslega um konur eins og fyrr segir og orð eins og „apaköttur“, „klikkuð kunta“ og „kræf kerfiskerling“ notuð. Þá hæddust þingmenn að MeToo-umræðunni og sögðu Gunnar Bragi Sveinsson og Bergþór Ólason að Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, þingkona Samfylkingarinnar, hefði áreitt þá og gengið á þá með kynlíf.
Það er auðvitað bara þeirra að svara fyrir þessi ummæli sín. Það er ótrúlegt að svona menn sem eru auðvitað sigurvegarar sjálfir í fegurðarsamkeppni séu að dæma um útlit og atgervi þingkvenna, sem þeir starfa með.https://t.co/YPag88hkvA
— Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (@aslaugarna) November 29, 2018