fbpx
Laugardagur 09.maí 2026
Fréttir

Viðskipti stöðvuð með bréf Icelandair

Ritstjórn DV
Mánudaginn 26. nóvember 2018 11:22

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kauphöll Íslands stöðvaði í morgun kl. 10:22 viðskipti með bréf í Icelandair. Samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni er það gert að beiðni Fjármálaeftirlitsins.

Túristi.is greindi fyrst frá þessu.

Gengi bréfa í félaginu höfðu hækkað um 1,88% og nam velta morgunsins 25 milljónum þegar viðskiptin voru stöðvuð.

Fyrr í mánuðinum var tilkynnt um kaup Icelandair Group á flugfélaginu WOW air, þau viðskipti eru nú til skoðunar hjá Samkeppniseftirlitinu.

Þá var greint frá því fyrir helgi að Loftleiðir Icelandic, dótturfélag Icelandair Group, hefði ásamt íslenskum fjárfestum lagt inn bindandi kauptilboð í 51% hlut í ríkisflugfélaginu Cabo Verde Airlines á Grænhöfðaeyjum.

Samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni er ekki hægt að veita frekari upplýsingar um málið og ekki er hægt að segja til hvenær opnað verður fyrir viðskipti á ný.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Pinnahælar reyndust leigjendum dýrkeyptir

Pinnahælar reyndust leigjendum dýrkeyptir
Fréttir
Í gær

Heiða Björg keypti áfengi á kostnað borgarinnar

Heiða Björg keypti áfengi á kostnað borgarinnar
Fréttir
Í gær

Vill hætta að selja áfengi á flugvöllum á morgnanna – „Hver þarf að vera drekka bjór á þeim tíma sólarhrings?“

Vill hætta að selja áfengi á flugvöllum á morgnanna – „Hver þarf að vera drekka bjór á þeim tíma sólarhrings?“
Fréttir
Í gær

Björg Magnúsdóttir: Viljum meiri tengingu milli skóla og frístunda – íþróttir mikilvægar fyrir inngildingu

Björg Magnúsdóttir: Viljum meiri tengingu milli skóla og frístunda – íþróttir mikilvægar fyrir inngildingu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Afkastageta Gosfélagsins verður um 70 milljónir lítra á ári

Afkastageta Gosfélagsins verður um 70 milljónir lítra á ári
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ari segir svör stjórnmálamanna hafa verið sláandi – „Allir sögðu nei“

Ari segir svör stjórnmálamanna hafa verið sláandi – „Allir sögðu nei“