

Í nýjum fjárlögum sem voru samþykkt á Alþingi var horfið frá áætlaðri 4 milljarða hækkun til málefna öryrkja og þess í stað ákveðið að hækka framlög til málaflokksins um 2,9 milljarða. Hefur þessi ákvörðun ríkisstjórnarinnar verið harðlega gagnrýnd en Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, sagði að gagnrýnin væri byggð á misskilningi.
Gestur þáttarins að þessu sinni er Rósa María Hjörvar, en hún er formaður málefnahóps um kjaramál hjá Öryrkjabandalagi Íslands. Við settumst niður með henni og fórum yfir stöðu öryrkja á Íslandi og ræddum meðal annars umdeilda aðgerð ríkisins sem fellst í starfsgetumati öryrkja, sem Öryrkjabandalagið hefur gagnrýnt.
Rósa ræðir meðal annars innleiðingu starfsgetumatsins á Íslandi og telur reynslu af því erlendis vera undir væntingum. Sem dæmi nefnir hún að samkvæmt rannsókn sem Háskólinn í Álaborg gerði hafa fleiri dáið en fengið vinnu í gegnum verkefnið.
Hér að neðan má sjá þáttinn í heild sinni.