fbpx
Sunnudagur 10.maí 2026
Fréttir

Sameinað félag verður með 77% allra flugferða til og frá Íslandi – Wizz næst stærst með 4%

Ari Brynjólfsson
Mánudaginn 5. nóvember 2018 13:18

Icelandair og WOW. Myndin er samsett.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rúmlega 77% allra flugferða til og frá Íslandi verða á vegum Icelandair Group ef af verður að kaupum Icelandair á WOW air. Rekstur WOW air hefur verið erfiður að undanförnu og tilkynnti Skúli Mogensen, forstjóri WOW, starfsmönnum í morgun að Icelandair Group hafi keypt flugfélagið og það verði dótturfélag Icelandair. Kaupin eru þó háð samþykkis hluthafa Icelandair Group og Samkeppniseftirlitsins.

Sjá einnig: Sjáðu tölvupóst Skúla Mogensen til starfsfólks WOW

Sjá einnig: Egill óttast að fargjöld hækki og framboð minnki með kaupum Icelandair á Wow

Flugfélögin eru risar á íslenskum flugmarkaði, samkvæmt frétt Túrista frá því í júlí síðastliðnum var Icelandair með 44,7% allra flugferða til og frá landinu, WOW air var í öðru sæti með 32,2% allra ferða. Þetta þýðir að ef kaupin ganga í geng verður 76,9% allra ferða á vegum Icelandair Group.

Ef tölurnar haldast óbreyttar verður Wizz air í öðru sæti með 3,8% allra ferða og EasyJet, SAS, Delta og Norwegian í sætunum fyrir neðan með rúm 2%.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hekla kveður Laugaveg með glæsilegri sumarsýningu

Hekla kveður Laugaveg með glæsilegri sumarsýningu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Komin með ríkisborgararétt eftir hálfrar aldar búsetu á Íslandi og kostulega viðureign við Útlendingastofnun

Komin með ríkisborgararétt eftir hálfrar aldar búsetu á Íslandi og kostulega viðureign við Útlendingastofnun
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Innrás Ingu Sæland og Guðmundar Inga á TikTokið – „Og allir fara að hlæja að okkur“

Innrás Ingu Sæland og Guðmundar Inga á TikTokið – „Og allir fara að hlæja að okkur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ársæll fær ekki að leiða ráðherra og aðstoðarmenn fram fyrir dómi – Þykir ekki hafa lögvarða hagsmuni

Ársæll fær ekki að leiða ráðherra og aðstoðarmenn fram fyrir dómi – Þykir ekki hafa lögvarða hagsmuni