

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu brást skjótt við eftir að amma á besta aldri tilkynnti um bílþjófnað á bílastæði verslunarmiðstöðvar í höfuðborginni nýverið. Segir í tilkynningu frá lögreglu að konan hafi skiljanlega verið í öngum sínum, hún hafi farið í verslunarmiðstöð til að sinna erindum og skilið barnabarnið eftir í bílnum. Í bíl sem var horfinn.
Konan gerði það rétta í stöðunni, hringdi strax í lögregluna og tilkynnti um þjófnaðinn. Lögregla brást skjótt við enda málið grafalvarlegt. Fjöldi lögreglumanna var kallaður til og hófst strax mikil leit að bílnum og barninu, sem er á leikskólaaldri.
Gerðar voru ráðstafanir ef ske kynni að þjófurinn hefði ekið frá höfuðborgarsvæðinu og voru önnur lögregluembætti jafnframt upplýst um málið.
Samkvæmt lögreglu stóð leitin hins vegar stutt yfir því eftir rúmar 10 mínútur, eða svo, var búið að leysa málið. Það var konan sjálf sem fann bæði bíllinn og barnið og það á bílastæði verslunarmiðstöðvarinnar eftir allt saman. Bíllinn hafði ekki verið færður úr stað allan tímann, en eftir á skýringin á öllu saman lá í því að konan fór út úr verslunarmiðstöðinni á öðrum stað en hún kom inn. Þeim megin fann hún ekki bíllinn sinn og barnabarnið og því fór af stað sú atburðarás sem áður er lýst.
Konunni var skiljanlega mjög létt eftir þessa slæmu upplifun, en hún var jafnframt mjög leið yfir öllu saman og þessar mínútur hafa örugglega reynst henni erfiðar og verið ansi lengi að líða. Lögregla segir mál af þessum toga ekki ný af nálinni og auðvitað geti það komið fyrir alla að vera stundum utan við sig, en hér hafi allt farið vel og það er fyrir mestu.