fbpx
Þriðjudagur 12.maí 2026
Fréttir

Suðurlandsvegur opnaður fljótlega

Ari Brynjólfsson
Miðvikudaginn 25. júlí 2018 14:59

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Umferðarslys varð á Suðurlandsvegi við Hólmsá, skammt frá Rauðhólum rétt fyrir klukkan tólf í dag. Tvær bifreiðar, fólksbíll og vörubifreið, skullu saman.  Ökumenn beggja bifreiða voru fluttir á slysadeild.

Suðurlandsvegur verður opnaður fljótlega, en verið er að hreinsa vettvang þar sem slysið varð á vatnsverndarsvæði.

Lögregla vill ekki veita upplýsingar um slysið eða tildrög þess að svo stöddu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt