fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
433Sport

Ítarlegt viðtal við Emil Hallfreðsson: Konan passar að fituprósentan sé í lagi fyrir Heimsmeistaramótið

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 25. maí 2018 12:48

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Emil Hallfreðsson, miðjumaður Udinese á Ítalíu og lykilmaður í íslenska landsliðinu, er kominn til landsins. Hann er klár í undirbúning fyrir stærsta íþróttaviðburð sem Ísland hefur tekið þátt í, sjálft Heimsmeistaramótið í knattspyrnu. Úrslitaleikur mótsins er sá íþróttaviðburður sem fær mest áhorf í heiminum, það eru allir að fylgjast með. Litla Ísland verður með, afrek sem fáir gátu séð fyrir að yrði að veruleika. Emil er einn af lykilmönnum liðsins, hann er öðruvísi karakter en margir í liðinu en á góðan hátt. Stundum hefur Emil ekki fengið allt það lof sem hann á skilið, margir hafa vanmetið afrek hans. Hann hefur nú mörg ár í röð leikið í efstu deild á Ítalíu, einni sterkustu deild sem knattspyrnumaður kemst í. Þar ertu ekki í mörg ár nema að kunna sitthvað fyrir þér í leiknum fagra.

,,Þetta var mjög spes tímabil í heild ef ég á að segja eins og er,“ sagði Emil þegar blaðamaður tyllti sér niður með honum fyrir æfingu landsliðsins. Röddin hjá Emil var að gefa sig, hann var afar hás en gaf sér tíma í gott spjall. Tímabilið með Udinese var að klárast, það var mjög skrýtið fyrir hann. Í fyrsta sinn í fjölda ára upplifði Emil það að vera settur í frystikistuna. Það kom langur kafli þar sem hann fékk ekkert að spila en Udinese sem er stórveldi, var í vandræðum innan vallar.

,,Ég var með þrjá þjálfara. Massimo Oddo, sá sem var í miðjunni af þeim hafði ekki mikla trú á mér, ég fékk voðalega lítið að spila, nánast ekki neitt. Þetta var ótrúlega skrýtið, það er ekki hægt að vera allra og maður skilur það alveg. Ég var samt alltaf klár ef kallið kæmi, það var gott þegar Igor Tudor tók við undir lok tímabilsins, ég spilaði síðustu tvo leikina. Það var frábært fyrir mig persónulega, maður er búinn að æfa vel og var alltaf klár ef kallið kæmi. Maður gaf líka gott svar á vellinum, við unnum báða þessa leiki og ég endaði þetta ótrúlega vel sjálfur. Það var rosalega gott fyrir mig að fá smá leikæfingu, sérstaklega í ljósi þess að HM er að koma. Þetta tímabil var lærdómsríkt að vissu leyti, þetta var ekkert alltaf ótrúlega skemmtilegt.“

Miklu betri árangur með Emil innan vallar
Tölfræði í fótboltanum getur blekkt en tölfræðin hjá Udinese með og án Emils segir alla söguna, liðið gekk í gegnum eyðimörk án hans en þegar Emil var á sínum stað á vellinum komu sigrar sem skiptu máli. Það miklu máli að þeir björguðu þessu fornfræga félagi frá falli úr efstu deild á Ítalíu. ,,Í þeim leikjum sem ég tók þátt í gekk vel, endirinn á tímabilinu var góður þar sem við gátum í raun fallið, og þeir voru mikilvægir. Þjálfarinn kom til mín og sagði mér að ég myndi spila þá, gaf mér traustið. Ég gaf honum það til baka og það var gott að enda þetta svona. Við enduðum í 14 sæti, það er ekki góður árangur. Við áttum á hættu að falla. Það var glórulaust að við skyldum vera í þessari aðstöðu, við töpuðum tólf leikjum í röð. Maður sat á bekknum á þeim tímapunkti og hugsaði hvað væri í gangi, maður gat ekkert.“

Tölfræði Udinese á þessu tímabili með og án Emils:

Án Emils
20 leikir = 11 stig
0,55 stig í leik

Með Emil innan vallar
18 leikir = 29 stig
1,61 stig í leik

Ákvað að halda kjafti
Emil er 33 ára gamall, hann hefur upplifað margt og veit að heimur fótboltans er skrýtinn. Það getur allt breyst á einu augabragði, bæði til hins betra og verra. ,,Fótboltinn er stórfurðulegur, þetta getur allt breyst á fimm mínútum. Þú getur verið kóngurinn og breyst í mesta bjánann á einu augnabliki. Þeir gera við mig nýjan samning og þjálfarinn var rosalega ánægður með það. Svo bara notar hann mig ekkert, maður þarf samt alltaf að vera klár. Ég hélt bara áfram, æfði vel. Ég ákvað það strax bara að halda kjafti og æfa, segja ekki neitt og vera klár. Í þessum síðustu tveimur leikjum þurfti liðið á því að halda að allir væru klárir og ég var það, maður hjálpaði liðinu að ná þessum tveimur síðustu úrslitum sem skiptu máli.“

Ráð til ungs fólks
Það getur tekið á andlega að sitja á bekknum og gera ekkert, sérstaklega þegar liðinu gengur illa og þú telur þig hafa ýmislegt fram að færa. Emil segist hafa ráð fyrir alla unga knattspyrnumenn. ,,Það sem skiptir mestu máli í fótbolta er að vera með hausinn í lagi, ef ég á að gefa ungum leikmönnum einhver ráð. Þetta skiptir máli, að vera alltaf rétt stilltur í hausnum. Sama hvort þú sért utan hóps, á bekknum eða í liðinu, að vera rétt stilltur þegar kallið kemur. Það getur breyst hvenær sem er að þú farir úr því að vera gaur á bekknum í að vera mikilvægur leikmaður. Þetta breytist svo hratt.“

Hefur lagt meira í sölurnar en áður
Þessi klóki leikmaður úr Hafnarfirði hefur lagt meira í sölurnar en áður, þetta hafa allir séð. Emil hefur æft meira, hugsað betur um mataræðið og allt sem því fylgir. ,,Ég hef lagt meira á mig en vanalega vegna þess sem er framundan, ég hef líka sagt að þetta tímabil átti að fara svona. Það var verið að spara mig til að ég yrði í góðu standi í sumar, maður reynir að horfa á þetta jákvæðum augum. Maður er svo klár í sumarið, maður hefur æft vel og lagt mikið á sig. Þetta verður sumar sem enginn mun gleyma.“

Konan passar að fituprósentan sé í lagi
Ása Reginsdóttir, eiginkona Emils passar vel upp á það sem fer ofan í hann. Blaðamaður hafði lengi hugsað út í spjall sitt við Emil og fór að fylgjast með ýmsu sem gæti nýst honum. Eitt af því var að skoða Instagram-síðu Ásu. Þar má sjá daglega hvað hún eldar ofan í fjölskyldu sína, ofnbakað grænmeti er þar vinsælt. ,,Hún er með pælingar í að bjóða þjóðinni í mat held ég bara,“ sagði Emil og brosti, það kom honum líklega á óvart að fá spurningu um þetta. ,,Það er mikið ofnbakað grænmeti. Það er passað upp á mataræðið, það skiptir máli. Hún fær hrós fyrir það, það er afar vel hugsað um karlinn. Það er ekki mikið af fiutprósentu núna. Ég er í rosalega góðu standi yfir höfuð, ég er kominn á þann aldur að það skiptir mig kannski ekki öllu máli að spila alveg heilt tímabil. Ég hafði tekið sirka tíu tímabil í röð þar sem ég spilaði yfir 30 leiki, það var gott fyrir mig að fá að spila þarna í lokin, bæði fyrir líkamann og hausinn. Núna verða tveir æfingaleikir, þar sem allir fá líklega tækifæri. Þá nær maður nokkrum leikjum til að vera í toppformi þegar fyrsti leikur á HM er.“

Hlutverkið hefur breyst frá síðasta stórmóti
Emil hefur upplifað allt með landsliðinu en í sumar verða 14 ár frá því að hann lék sinn fyrsta landsleik. Hann hefur upplifað það að spila mjög stórt hlutverk og einnig að vera í algjöru aukahlutverki. Sitja mikið á bekknum og eins og raunin var á Evrópumótinu í Frakklandi. Þar kom Emil aðeins einu sinni við sögu sem varamaður gegn Ungverjalandi. Eftir að Heimir Hallgrímsson tók við liðinu hefur Emil hins vegar fengið mjög stórt hlutverk, hann hefur stimplað sig inn sem lykilmaður og óhætt er að fullyrða að hann hafi aldrei spilað betur í bláu treyjunni. ,,Ég get alveg viðurkennt það að fyrir EM bjóst ég við að spila meira, fá fleiri mínútur og koma oftar inn. Núna undir stjórn Heimis hef ég fengið stærra hlutverk en áður, ég spilaði síðustu sex leikina í undankeppninni. Við breyttum um leikkerfi sem gekk rosalega vel, ég vona að ég sé í stærra hlutverki á HM en raunin var á EM. Má maður ekki alveg búast við því? Ég hef séð það þannig fyrir mér, ég er búinn að stilla mig inn á það. Ég ætla að vera í flottu standi, gera allt sem ég get gert fyrir liðið. Það eru allir þannig, okkur langar að ná árangri.“

Markmið liðsins eru á hreinu
Ísland er í sterkum riðli í Rússlandi en liðið setur stefnuna upp úr honum, efstu tvö sætin komast í 16 liða úrslitin. ,,Við ætlum að komast upp úr riðlinum og skoða svo stöðuna, ég held að það sé fínt að horfa á hlutina þannig. Það væri fáránlegt að mæta og segjast ætla að vinna mótið en við ætlum okkur upp úr þessum riðli. Það er markmiðið, svo verður staðan skoðuð eins og í Frakklandi. Vonandi getum við komið hinum liðunum á óvart.“

Leikir Íslands á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi
Laugardagurinn 16. júní: Ísland – Argentína (13:00)
Föstudagurinn 22. júní: Ísland – Nígería (15:00)
Þriðjudagurinn 26. júní: Ísland – Króatía (18:00)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Segir Roy Keane vera risaeðlu eftir ummæli hans um hlaðvarpið

Segir Roy Keane vera risaeðlu eftir ummæli hans um hlaðvarpið
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Stjarna United frumsýndi nýja kærustu – Vann áður á McDonald’s

Stjarna United frumsýndi nýja kærustu – Vann áður á McDonald’s
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

England: Meistararnir í engum vandræðum með Brighton

England: Meistararnir í engum vandræðum með Brighton
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

KR fékk miðjumann úr sænsku úrvalsdeildinni

KR fékk miðjumann úr sænsku úrvalsdeildinni
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Mjólkurbikarinn: Víkingar lentu óvænt undir en svöruðu vel fyrir sig – KA áfram eftir framlengingu

Mjólkurbikarinn: Víkingar lentu óvænt undir en svöruðu vel fyrir sig – KA áfram eftir framlengingu