Frakkland varð heimsmeistari í Rússlandi í sumar en liðið vann góðan 4-2 sigur á Króatíu í úrslitaleiknum.
Hópur Frakklands er gríðarlega sterkur en þriðju markvörður liðsins er aðalmarkvörður Paris Saint-Germain, Alphonse Areola.
Areola fékk að lyfta bikarnum eftir sigur í mótinu en hann er einu leikmaður Frakklands sem á ekki leik að baki.
Areola hefur aldrei spilað landsleik fyrir A lið Frakklands en hefur komið við sögu hjá unglingaliðum.
Þessi 25 ára gamli leikmaður fékk þó bikarinn í hendurnar þrátt fyrir að hafa aldrei stigið á völlinn fyrir aðalliðið.
Þetta er í fyrsta sinn frá árinu 1982 sem leikmaður sem á ekki leik að baki lyftir bikarnum en Franco Baresi gerði það 22 ára gamall fyrir Ítalíu.