Það vantar ekki sjálfstraustið í varnarmann króatíska landsliðsins, Dejan Lovren sem spilaði með Króatíu gegn Englandi í gær.
Lovren er á mála hjá Liverpool á Englandi og spilaði í úrslitum Meistaradeildarinnar gegn Real Madrid í maí. Sá leikur tapaðist.
Lovren er nú á leið í úrslitaleik HM og er hann á því máli að hann sé einn allra besti varnarmaður heims.
,,Fólk segir að ég hafi átt erfitt tímabil en ég er ósammála því. Ég sýndi það þegar ég tók Liverpool alla leið í úrslit Meistaradeildarinnar,“ sagði Lovren.
,,Núna er ég að gera það sama og er kominn í úrslit HM. Fólk ætti að átta sig á þvi að ég er einn af bestu varnarmönnum heims.“