

Jose Mourinho stjóri Manchester United hefur spáð fyrir um það hvaða lið komast í 16 liða úrslit á HM í Rússlandi.
Spá hans kemur nokkuð á óvart og þá sérstaklega í okkar riðli en þar spáir hann því að Argentína vinni riðilinn.
Þá spáir Mourinho því að Nígería muni fylgja liðinu upp úr riðlinum en ekki Króatía eða Ísland.
Hann spáir því að Nígería muni því mæta Frakklandi í 16 liða úrslitum.
Spá Mourinho er hér að neðan
16 liða úrslit samkvæmt Mourinho:
Úrúgvæ vs Portúgal
Spánn vs Rússland
Frakkland vs Nígería
Argentína vs Ástralía
Brasilía vs Mexíkó
Þýskaland vs Sviss
England vs Pólland
Senegal vs Belgía