fbpx
Föstudagur 10.apríl 2026
Pressan

Miklar vendingar í máli konu sem hvarf í bátsferð með eiginmanni sínum

Pressan
Fimmtudaginn 9. apríl 2026 10:30

Lynette Hooker.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leit að hinni bandarísku Lynette Hooker, sem hvarf á laugardagskvöld eftir bátsferð með eiginmanni sínum undan ströndum Bahamaeyja, hefur enn engan árangur borið.

Vendingar hafa þó orðið í málinu þar sem lögregla hefur handtekið 59 ára karlmann vegna gruns um aðild að hvarfinu. Nafn hans hefur ekki verið gefið upp opinberlega en fjölmiðlar vestanhafs, þar á meðal AP, greina frá því að um eiginmann hennar, Brian Hooker, sé að ræða.

DV sagði frá málinu í gær en að sögn Brians féll Lynette fyrir borð þegar hjónin voru á leið frá Hope Town til Elbow Cay á laugardagskvöld.

Sjá einnig: Dóttir krefst svara eftir dularfullt hvarf móður sinnar

Samkvæmt frásögn eiginmannsins var Lynette með lyklana að bátnum á sér þegar slysið varð og lýsti hann því að sterkir útfallsstraumar hefðu borið hana hratt frá bátnum. Þar sem hann var ekki með lykla hafi vélin stöðvast og þurfti hann því að róa bátnum í nokkrar klukkustundir að landi.

Dóttir konunnar, Karly Aylesworth, steig fram í viðtölum við bandaríska fjölmiðla í vikunni þar sem hún sagðist efast um frásögn stjúpföður síns.

„Ég skil ekki hvernig hún gat verið með lykilinn að bátnum. Brian er alltaf við stýrið og hefur því vanalega lyklana í sinni vörslu. Þetta passar einfaldlega ekki við það sem ég þekki,“ sagði Aylesworth við CBS News. Kallaði hún eftir því að málið yrði rannsakað til hlítar og benti á að móðir hennar væri þaulvön siglingum.

Í fréttum bandarískra fjölmiðla kemur fram að bandaríska strandgæslan hafi hafið sakamálarannsókn á málinu, þar sem atvikið átti sér stað um borð í báti sem sigldi undir bandarískum fána á alþjóðlegu hafsvæði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Óttast að mannrán hafi verið framið á annan í páskum

Óttast að mannrán hafi verið framið á annan í páskum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Óttast endurkomu hættulegs barnasjúkdóms eftir samdrátt í bólusetningum

Óttast endurkomu hættulegs barnasjúkdóms eftir samdrátt í bólusetningum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Læknir segir að þessi næringarefni séu nauðsynleg fyrir alla yfir sextugu

Læknir segir að þessi næringarefni séu nauðsynleg fyrir alla yfir sextugu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Allt brjálað í Bretlandi vegna Kanye West

Allt brjálað í Bretlandi vegna Kanye West
Pressan
Fyrir 4 dögum

Fyrrum foringi í flughernum segir að geimverur hafi aftengt bandarísk kjarnorkuvopn í kalda stríðinu

Fyrrum foringi í flughernum segir að geimverur hafi aftengt bandarísk kjarnorkuvopn í kalda stríðinu
Pressan
Fyrir 4 dögum

Viltu vita hver andlegi aldur þinn er? – Þá þarftu bara að telja hundana

Viltu vita hver andlegi aldur þinn er? – Þá þarftu bara að telja hundana
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þess vegna er best að þurrka leirtauið ekki með viskastykki

Þess vegna er best að þurrka leirtauið ekki með viskastykki
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þetta getur gefið til kynna að þú fáir of lítið prótín

Þetta getur gefið til kynna að þú fáir of lítið prótín