fbpx
Þriðjudagur 12.maí 2026
Pressan

Að forðast sólina getur aukið dánarlíkurnar jafn mikið og reykingar

Pressan
Mánudaginn 6. apríl 2026 14:00

Mynd: Unsplash.com

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áratugum saman hafa læknar og vísindamenn varað fólk við að vera of mikið í sólinni. Auglýsingaherferðum hefur verið beint að fólki þar sem bent var á tengslin á milli útfjólublárra geisla og hættunnar á að fá húðkrabbamein.

En niðurstöður nýrrar sænskrar rannsóknar benda til að það geti verið hættulegt að vera of lítið í sólinni. Um stóra langtímarannsókn er að ræða þar sem tæplega 30.000 sænskum konum var fylgt eftir í tvo áratugi.

Rannsóknin hefur verið birt í vísindaritinu Journal of Internal Medicine. Í henni kemur fram að það getur aukið dánarlíkurnar ef fólk forðast meðvitað að vera í sólinni.

Við upphaf rannsóknarinnar voru þátttakendurnir á aldrinum 25 til 64 ára. Konurnar voru spurðar út í hversu mikið þær voru í sólinni. Vísindamennirnir deildu svörum þeirra síðan upp í þrjá flokka: Forðast sólina, hóflega mikið í sólinni og mikið í sólinni.

Niðurstöðurnar sýndu skýran mun á milli flokkanna. Konurnar, sem forðuðust sólina meðvitað, voru með mun hærri dánartíðni en þær sem voru reglulega í sól.

Samanlögð heilsufarshætta kvennanna, sem forðuðust sólina meðvitað, var tölfræðilega séð svipuð og hjá þeim sem reykja. Gögnin sýndu einnig að konur, sem voru lítið í sólinni, lifðu að meðaltali 0,6 til 2,1 árum skemur en þær sem voru oftar í sólinni.

Vísindamennirnir segja að hjarta- og æðasjúkdómar hafi verið aðalorsökin fyrir hinni auknu dánartíðni. Konur, sem voru lítið í sólarljósi, fengu oftar blóðtappa, heilablóðfall og hjartaáfall.

Vísindamennirnir segja að margir líffræðilegir þættir komi við sögu hvað varðar þessi tengsl á milli sólarljóssins og dánartíðni. Sú best þekkta er D-vítamínframleiðsla líkamans, sem geislar sólarinnar örva, sem kemur við sögu hjá ónæmiskerfinu, heilbrigði beinanna og hringrás líkamans.

Sólarljós hefur einnig áhrif á blóðþrýstinginn í gegnum losun köfnunarefnisoxíðs í húðinni og einnig fyrir dægurryþma líkamans.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Óvæntur glaðningur fylgdi gjafasæðinu

Óvæntur glaðningur fylgdi gjafasæðinu
Pressan
Í gær

Þessi þrjú eldhústæki ættu aldrei að vera í sambandi þegar þau eru ekki í notkun – Geta skapað mikla eldhættu

Þessi þrjú eldhústæki ættu aldrei að vera í sambandi þegar þau eru ekki í notkun – Geta skapað mikla eldhættu
Pressan
Í gær

Segir að Pútín hafi málað sig út í horn

Segir að Pútín hafi málað sig út í horn
Pressan
Í gær

Svona er hægt að sjóða kartöflur hraðar

Svona er hægt að sjóða kartöflur hraðar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona lengi er hægt að geyma kjöt í frysti

Svona lengi er hægt að geyma kjöt í frysti
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta finnst gáfuðu fólki afslappandi en venjulegt fólk þolir þetta ekki

Þetta finnst gáfuðu fólki afslappandi en venjulegt fólk þolir þetta ekki
Pressan
Fyrir 2 dögum

Læknir varar við vinsælum morgunmat – Getur verið heilsunni hættulegur

Læknir varar við vinsælum morgunmat – Getur verið heilsunni hættulegur
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þanin(n) og þreytt(ur)? – Þessir ávextir geta hjálpað

Þanin(n) og þreytt(ur)? – Þessir ávextir geta hjálpað