fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
Pressan

Hitamet slegið í Bandaríkjunum

Pressan
Föstudaginn 10. apríl 2026 06:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nýliðinn marsmánuður var sá hlýjasti á meginlandi Bandaríkjanna frá því að mælingar hófust fyrir 132 árum. Meðalhiti mánaðarins var 10,47°C sem er heilum 5,19°C yfir meðallagi 20. aldarinnar fyrir marsmánuð.

Fyrra metið var sett í mars 2012 en þá mældist hitinn 4,9°C yfir meðallagi 20. aldarinnar.

„Það sem við upplifðum í mars um öll Bandaríkin var fordæmalaust,“ sagði Shel Winkley, veðurfræðingur hjá Climate Central, sjálfstæðri vísindarannsóknarstofnun, í samtali við AP.

ÞHitinn í mars var ekki aðeins mikill heldur náði hann yfir stór landsvæði. Dagana 20. og 21. mars upplifði um þriðjungur Bandaríkjamanna hitabylgju sem samkvæmt útreikningum hefði vart verið möguleg án loftslagsbreytinga af mannavöldum.

Samkvæmt greiningu veðurfræðingsins Guy Walton féllu meira en 19.800 dagleg hitamet víðs vegar um landið í mars einum.

Áhyggjur vísindamanna beinast nú einnig að Kyrrahafinu. Bæði Haf- og loftslagsstofnun Bandaríkjanna (NOAA) og loftslagsstofnun Evrópusambandsins, Kópernikus, spá því að veðurfyrirbærið El Niño verði sérstaklega öflugt á næstu mánuðum og gæti það stuðlað að enn frekari hitametum seint á þessu ári og fram eftir næsta ári.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Móðir í áfalli og sendir foreldrum skýra viðvörun – „Tíu mínútum síðar gerðist þetta“

Móðir í áfalli og sendir foreldrum skýra viðvörun – „Tíu mínútum síðar gerðist þetta“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sífellt fleiri foreldrar hafna K-vítamínsprautu fyrir börn sín – Afleiðingarnar geta verið skelfilegar

Sífellt fleiri foreldrar hafna K-vítamínsprautu fyrir börn sín – Afleiðingarnar geta verið skelfilegar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fékk viðurkenningarskjal eftir að hafa lúskrað á ferðamanni – Sjáðu myndbandið

Fékk viðurkenningarskjal eftir að hafa lúskrað á ferðamanni – Sjáðu myndbandið
Pressan
Fyrir 3 dögum

Góður gangur hjá Úkraínumönnum á vígvellinum – Sérfræðingur segir þetta skýra það

Góður gangur hjá Úkraínumönnum á vígvellinum – Sérfræðingur segir þetta skýra það
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sálfræðingur segir að hamingjusömustu pörin geri þetta sér til skemmtunar

Sálfræðingur segir að hamingjusömustu pörin geri þetta sér til skemmtunar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ofursti skefur ekki utan af því – Norðmenn geta ekki lengur gengið

Ofursti skefur ekki utan af því – Norðmenn geta ekki lengur gengið