fbpx
Þriðjudagur 21.apríl 2026
Pressan

Töluverður heilsufarsávinningur getur fylgt því að liggja á maganum

Pressan
Mánudaginn 6. apríl 2026 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Tummy time“ (maga tími) er yfirleitt tengt við ungabörn en fyrir þau er þetta notað til að styrkja vöðva og fínhreyfingar. En þessi aðferð sækir nú á fyrir fullorðna.

HuffPost skýrir frá þessu og segir að hugmyndin á bak við þetta sé einföld: Að nota tíma á hverjum degi til að liggja á maganum. Sérfræðingar segja að þetta geti unnið á móti líkamlegum vandamálum sem margir finna fyrir eftir langa daga fyrir framan skjáinn eða við skrifborð.

Tölur frá bandarísku vinnumálastofnuninni sýna að fólk situr að meðaltali 45% af vinnudeginum. Um 91% Bandaríkjamanna eiga snjallsíma og það þýðir því að mjög margir eyða stórum hluta af deginum í að horfa á skjá. Sérfræðingar segja að þessi blanda geti valdið mörgum líkamlegum vandamálum.

„Að liggja á maganum í 10 mínútur eða meira á dag, á meðan maður horfir á sjónvarpið eða les, getur bætt úr lélegri líkamsstöðu og linað hálsverki, álagið á hnakka og axlir sem verður til þegar við horfum niður á síma og spjaldtölvur klukkustundum saman,“ sagði Julie Landis, sjúkraþjálfari, að sögn HuffPost.

Margir læknar og meðferðaraðilar segjast fá sífellt fleiri sjúklinga sem glíma við verki í hnakka. Það er því kannski ekki úr vegi að liggja smávegis á maganum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Vilhjálmur prins sagður ætla að meina Harry bróður sínum að vera viðstaddur krýninguna

Vilhjálmur prins sagður ætla að meina Harry bróður sínum að vera viðstaddur krýninguna
Pressan
Í gær

Þetta skaltu alltaf þrífa áður en þú flytur inn í nýtt hús

Þetta skaltu alltaf þrífa áður en þú flytur inn í nýtt hús
Pressan
Í gær

Nokkrar ástæður þess að fólk hefur ekki stigið fæti á tunglið síðan 1972

Nokkrar ástæður þess að fólk hefur ekki stigið fæti á tunglið síðan 1972
Pressan
Í gær

Á þessum tímapunkti lífsins sýnir einmanaleikinn sitt ljóta andlit

Á þessum tímapunkti lífsins sýnir einmanaleikinn sitt ljóta andlit
Pressan
Fyrir 2 dögum

Dýr mistök á opnunardegi pitsastaðar – Greiddu viðskiptavinum fyrir að kaupa pítsu

Dýr mistök á opnunardegi pitsastaðar – Greiddu viðskiptavinum fyrir að kaupa pítsu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vísindamaður aflífar mýtur um rottur

Vísindamaður aflífar mýtur um rottur