fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
433Sport

Tölvupóstur yfirmanns lekur út – „Tak fyrir þennan fallega póst, hoppaðu nú upp í rassgatið á þér“

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 10. apríl 2026 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Formaður enskrar knattspyrnudeildar hefur vakið mikla athygli eftir að hafa sent stuðningsmanni dónalegt svar í tölvupósti vegna deilna um leikstað.

Um er að ræða Northern Premier League, þar sem formaðurinn Mark Harris svaraði stuðningsmanni með móðgandi hætti. Stuðningsmaðurinn, Aled Duckfield, sem fylgir FC United of Manchester, birti skjáskot af samskiptunum á samfélagsmiðlum.

Deilan snýst um mikilvægan leik FC United gegn Stockton Town sem hefur verið frestað sex sinnum vegna slæms ástands vallarsins á Broadhurst Park. Í eitt skiptið hafði Stockton ferðast langa leið áður en leiknum var aflýst skömmu fyrir upphaf.

Deildin hefur nú ákveðið að leikurinn, sem á að fara fram 21. apríl, verði spilaður á hlutlausum velli, heimavelli Curzon Ashton. Sú ákvörðun hefur farið illa í stuðningsmenn FC United, sem telja sig missa mikilvægan heimaleik í baráttunni um sæti í efri deild.

Duckfield sendi Harris tölvupóst þar sem hann gagnrýndi ákvörðunina harðlega og kallaði hana „skelfilega“. Hann sakaði deildina einnig um vanhæfni og krafðist þess að Harris segði af sér.

Samkvæmt færslu Duckfield svaraði Harris aðeins sex mínútum síðar með stuttu en afar grófu svari, sem hefur síðan farið víða á netinu. „Tak fyrir þennan fallega póst, hoppaðu nú upp í rassgatið á þér.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Allt að fara yfir um í London fyrir viðburðinn í næstu viku – Ódýrasti miðinn nú á rúmar 300 þúsund krónur

Allt að fara yfir um í London fyrir viðburðinn í næstu viku – Ódýrasti miðinn nú á rúmar 300 þúsund krónur
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Spánverjar skilja margar hetjur eftir heima í sumar

Spánverjar skilja margar hetjur eftir heima í sumar
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Arnar um Aron Einar: „Síðasti leikmaðurinn sem ég þarf að vega og meta“

Arnar um Aron Einar: „Síðasti leikmaðurinn sem ég þarf að vega og meta“
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Ítarlegt viðtal við Arnar Gunnlaugs: Spurður út í vonarstjörnu Íslands – „Þeir vita alveg hvar þeir eru í fæðukeðjunni“

Ítarlegt viðtal við Arnar Gunnlaugs: Spurður út í vonarstjörnu Íslands – „Þeir vita alveg hvar þeir eru í fæðukeðjunni“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Arnar velur tvo hópa fyrir komandi leiki – Tíu taka þátt í báðum

Arnar velur tvo hópa fyrir komandi leiki – Tíu taka þátt í báðum
433Sport
Í gær

Myndband: Rauk út af blaðamannafundi eftir sigur í gær – „Ertu svindlari?“

Myndband: Rauk út af blaðamannafundi eftir sigur í gær – „Ertu svindlari?“
433Sport
Í gær

Birta samskipti dómara og VAR-herbergisins frá atvikinu í London um helgina – Hlustaðu á það sem gekk á

Birta samskipti dómara og VAR-herbergisins frá atvikinu í London um helgina – Hlustaðu á það sem gekk á