fbpx
Þriðjudagur 21.apríl 2026
Pressan

Reiði yfir ákvörðun þingsins í Tennessee – Nú eiga skólar að hampa boðorðunum tíu

Pressan
Sunnudaginn 5. apríl 2026 13:30

Mynd úr safni

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nokkur ríki Bandaríkjanna, þar sem Repúblikanar eru við völd, hafa verið að auka veg kristinnar trúar í skólum ríkjanna. Nú síðast samþykkti þing Tennessee að skólar eigi að hampa boðorðunum tíu.

The Independt skýrir frá þessu og segir að samkvæmt nýju lögunum verði skólar að hafa boðorðin tíu á áberandi stöðum við hlið annarra sögulegra skjala, til dæmis stjórnarskrárinnar og sjálfstæðisyfirlýsingarinnar.

Andstæðingar laganna segja að þau blandi saman ríkisvaldinu og kirkjunni á óviðeigandi hátt.

„Börnin okkar eiga að læra að lesa, skrifa, reikna, vísindi og tækni, til að gera þau að heimsklassa kynslóð sem getur borið þetta land áfram. Það á ekki að innræta þeim hvað segir hér og þar í biblíunni,“ sagði London Lamar, Demókrati frá Memphis, þegar frumvarpið var rætt í þinginu. Hann sagði að það sé á ábyrgð foreldra og fjölskyldna barnanna, eða einkaaðila, að kenna börnunum um Jesú Krist og kristna trú.

Jeff Yarbro, þingmaður frá Nashville, sagði að þingmenn ættu frekar að eyða tíma í að reyna að fylgja boðorðunum sjálfir og sagði að lögin muni örugglega enda fyrir dómstólum. Það sé óhjákvæmilegt að skattgreiðendur muni greiða kostnaðinn við dómsmálin.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Herða reglurnar – Ferðamenn verða að greiða 1,8 milljónir til að fá að koma til Bandaríkjanna

Herða reglurnar – Ferðamenn verða að greiða 1,8 milljónir til að fá að koma til Bandaríkjanna
Pressan
Í gær

Vilhjálmur prins sagður ætla að meina Harry bróður sínum að vera viðstaddur krýninguna

Vilhjálmur prins sagður ætla að meina Harry bróður sínum að vera viðstaddur krýninguna
Pressan
Í gær

Þetta er besta aðferðin við að geyma brauð – Ekki pokar!

Þetta er besta aðferðin við að geyma brauð – Ekki pokar!
Pressan
Í gær

Nokkrar ástæður þess að fólk hefur ekki stigið fæti á tunglið síðan 1972

Nokkrar ástæður þess að fólk hefur ekki stigið fæti á tunglið síðan 1972
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Ég sagði honum að hann væri í röngu gati“ – „Síðan komst ég að ástæðunni“

„Ég sagði honum að hann væri í röngu gati“ – „Síðan komst ég að ástæðunni“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Konur segja þessa spurningu karla í rúminu vera „fullnægingarmorðingja“

Konur segja þessa spurningu karla í rúminu vera „fullnægingarmorðingja“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sænskur einfari handtekinn 21 ári eftir tvö morð

Sænskur einfari handtekinn 21 ári eftir tvö morð
Pressan
Fyrir 2 dögum

Dýr mistök á opnunardegi pitsastaðar – Greiddu viðskiptavinum fyrir að kaupa pítsu

Dýr mistök á opnunardegi pitsastaðar – Greiddu viðskiptavinum fyrir að kaupa pítsu