
Prótín er í flestum þeim mat sem við borðum. Mest kemur yfirleitt úr kjöti, fiski og eggjum. Brauð og kornvörur á borð við rúgbrauð og haframjöl eru einnig góð uppspretta prótíns sem og mjólkurvörur á borð við mjólk, skyr, ost og jógúrt. Úr jurtaríkinu má nefna hnetur, möndlur og sojaafurðir til sögunnar.
Almennt er fólki ráðlagt að neyta 0,8 gramma af prótíni fyrir hvert kíló sem það vegur. Næringarfræðingurinn Rebecca Blake segir að prótínþörfin geti þó verið meiri miðað við aldur og heilsufar.
Eitt fyrsta merkið um að fólk borði of lítið prótín er að það finnur til viðvarandi svengdar. Næringarfræðingurinn Tamar Samules sagði í samtali við Parade að ef maður fær ekki nóg prótín geti maður fundið til svengdar skömmu eftir máltíð og skiptir þá engu þótt maður hafi borðað nóg af hitaeiningum. Prótín er mikilvægt fyrir mettunartilfinninguna.
Húðin, hárið og neglurnar geta orðið fyrir áhrifum af of lítilli prótínneyslu en samkvæmt UCLA Health eru húðin, hárið og neglurnar að stórum hluta úr prótíni.
Ef líkamann vantar prótín getur hárið orðið þurrt, neglurnar stökkar og húðin þurrari en venjulega.
Enn alvarlegra einkenni er óvænt þyngdartap. Samuels benti á að líkaminn geti byrjað að brjóta vöðvamassann niður ef hann fær ekki nóg prótín. Þetta gerist aðallega hjá eldra fólki.