fbpx
Laugardagur 09.maí 2026
Pressan

Óttast að mannrán hafi verið framið á annan í páskum

Pressan
Þriðjudaginn 7. apríl 2026 17:30

Sænskir lögreglumenn við störf. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögregla í Svíþjóð hefur óskað eftir upplýsingum frá almenningi vegna rannsóknar á atviki sem varð á bílastæði í borginni Borås í gær, á annan í páskum. Grunur leikur á að um mannrán hafi verið ræða.

Málið er rannsakað sem mannrán en lögreglu hefur ekki tekist að komast að því hvaða manneskju hefur þá verið rænt.

Borås er í suðurhluta landsins, í Västra Götaland héraði. Þar búa svipað margir og í Reykjavík. Borgin er í um 55 kílómetra í austurátt frá Gautaborg. Knattspyrnufélagið Elfsborg, sem leikur í úrvalsdeild karla í Svíþjóð, er frá Borås, en nokkrir íslenskir knattspyrnumenn hafa leikið með félaginu en í núverandi leikmannahóp eru tveir Íslendingar.

Í fréttum SVT kemur fram að á annan í páskum, um klukkan 17, hafi nokkur fjöldi einstakingla haft samband við lögreglu og sagst hafa orðið vitni að því að manneskja hafi verið þvinguð inn í bíl á bílastæði. Öll vitnin sáu hins vegar atvikið úr nokkurri fjarlægð og þar af leiðandi hefur ekki tekist að bera kennsl á mannræningjana eða þolandann.

Svo virðist þó sem að tekist hafi að bera kennsl á bifreiðina sem notuð var við verknaðinn en hennar mun nú vera leitað en lögregla óskar eftir frekari upplýsingum fólki almenningi og sérstaklega fólki sem kunni að hafa verið statt á svæðinu um þetta leyti og hugsanlega séð eitthvað meira en þeir sem nú þegar hafa haft samband við lögreglu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Óhugnanleg ný gögn úr dularfulla flugslysinu – Hvað gerðist í stjórnklefanum?

Óhugnanleg ný gögn úr dularfulla flugslysinu – Hvað gerðist í stjórnklefanum?
Pressan
Í gær

Þeir sem sofa með svefnherbergisdyrnar lokaðar eiga þetta sameiginlegt

Þeir sem sofa með svefnherbergisdyrnar lokaðar eiga þetta sameiginlegt