fbpx
Þriðjudagur 21.apríl 2026
Pressan

Prófessor í offitumálum með óvænta yfirlýsingu – „Fita er vinur okkar“

Pressan
Mánudaginn 6. apríl 2026 16:30

Mynd/Pexels

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það virðist sífellt verða meira og meira af okkur öllum miðað við að oft er talað um að sífellt hærra hlutfall fólks sé í ofþyngd.

En það að vera feitur er ekki endilega ávísun á að maður sé með sjúkdóm segir Jens Meldgaard Bruun, prófessor við Steno sykursýkismiðstöðina í Árósum í Danmörku.

„Margir halda að fita sé slæm. En við eigum ekki að vera svona hrædd við hana. Fita, eða fituvefurinn, er vinur okkar,“ segir hann.

Mörgum kann að finnast þetta óvænt yfirlýsing frá prófessornum sem er einnig yfirlæknir dönsku offitumiðstöðvarinnar.

Hann segir að ástæðan fyrir því að fólk þyngist sífellt meira sé að við séum sköpuð til að borða þegar það er til matur og geyma þar til það er ekki til matur. „Þetta veldur mikilli erfðafræðilegri pressu í heimi þar sem er aðgangur að mat allan sólarhringinn,“ sagði Bruun.

Sá matur, sem við breytum ekki strax í orku, er geymdur sem fita. Bruun vill gjarnan að fólk skilji að það er ekki fitan sem er í sjálfu sér hættuleg. „Við geymum orku í fituvefnum og það er snjallt. Ef við værum ekki með fituvef, þyrfti að geyma aukafitu í vöðvavefnum eða í lifrarvefnum. Það væri óhollt fyrir líkamann,“ sagði hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Herða reglurnar – Ferðamenn verða að greiða 1,8 milljónir til að fá að koma til Bandaríkjanna

Herða reglurnar – Ferðamenn verða að greiða 1,8 milljónir til að fá að koma til Bandaríkjanna
Pressan
Í gær

Vilhjálmur prins sagður ætla að meina Harry bróður sínum að vera viðstaddur krýninguna

Vilhjálmur prins sagður ætla að meina Harry bróður sínum að vera viðstaddur krýninguna
Pressan
Í gær

Þetta er besta aðferðin við að geyma brauð – Ekki pokar!

Þetta er besta aðferðin við að geyma brauð – Ekki pokar!
Pressan
Í gær

Nokkrar ástæður þess að fólk hefur ekki stigið fæti á tunglið síðan 1972

Nokkrar ástæður þess að fólk hefur ekki stigið fæti á tunglið síðan 1972
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Ég sagði honum að hann væri í röngu gati“ – „Síðan komst ég að ástæðunni“

„Ég sagði honum að hann væri í röngu gati“ – „Síðan komst ég að ástæðunni“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Konur segja þessa spurningu karla í rúminu vera „fullnægingarmorðingja“

Konur segja þessa spurningu karla í rúminu vera „fullnægingarmorðingja“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sænskur einfari handtekinn 21 ári eftir tvö morð

Sænskur einfari handtekinn 21 ári eftir tvö morð
Pressan
Fyrir 2 dögum

Dýr mistök á opnunardegi pitsastaðar – Greiddu viðskiptavinum fyrir að kaupa pítsu

Dýr mistök á opnunardegi pitsastaðar – Greiddu viðskiptavinum fyrir að kaupa pítsu