fbpx
Þriðjudagur 12.maí 2026
Pressan

Vísindamenn sem rannsökuðu hákarla við strendur Bahamas gerðu óvænta uppgötvun

Pressan
Þriðjudaginn 7. apríl 2026 06:00

Hvíthákarl sem tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Koffín, verkjalyf og kókaín hafa fundist í blóði hákarla í grennd við Bahamaeyjar, samkvæmt nýrri alþjóðlegri rannsókn sem varpar ljósi á vaxandi mengun í höfunum.

CBS News greindi frá niðurstöðunum á dögunum.

Rannsóknarteymi sjávarlíffræðinga greindi blóðsýni úr 85 hákörlum af fimm mismunandi tegundum, sem veiddir voru nokkra kílómetra undan ströndum afskekktrar eyju í Bahama-eyjaklasanum. Sýnin voru svo prófuð fyrir 24 mismunandi efnum, bæði löglegum og ólöglegum.

Niðurstöðurnar sýndu að 28 hákarlar höfðu mælanlegt magn af koffíni, algengum bólgueyðandi verkjalyfjum sem fást án lyfseðils. Í einu tilviki mældist kókaín í blóði hákarlsins. Þá er tekið fram að sumir þeirra reyndust vera með fleiri en eitt af þessum efnum í blóðinu.

Rannsakendur segja að þetta sé hluti af vaxandi vandamáli þar sem lyf, vímuefni og önnur efni finnast í auknum mæli í höfum heimsins. Sérstaklega séu svæði í hraðri uppbyggingu viðkvæm fyrir slíkri mengun.

„Þó að uppgötvun kókaíns, sem er ólöglegt efni, veki strax athygli, er magn koffíns og annarra lyfja í blóði margra þeirra hákarla sem voru rannsakaðir ekki síður áhyggjuefni,“ segir Natascha Wosnick, aðalhöfundur rannsóknarinnar og dýrafræðingur.

„Þetta eru lögleg efni sem margir neyta daglega og fólk virðist lítið spá í þau, en umhverfisáhrif þeirra eru greinilega mælanleg.“

Gögn rannsóknarinnar benda til þess að hákarlar með þessi efni í blóði sýni breytingar á efnaskiptum, þar á meðal merkjum sem tengjast streitu. Enn er þó óljóst hvort þessar breytingar hafi bein skaðleg áhrif, en vísindamenn telja mögulegt að þær geti haft áhrif á hegðun dýranna.

„Helsta áhyggjuefni okkar er ekki aukin árásargirni gagnvart mönnum, heldur möguleg áhrif á heilsu og stöðugleika í stofni dýranna,“ segir Wosnick.

Hún bendir á að langvarandi útsetning fyrir manngerðum efnum, sem eiga sér enga náttúrulega hliðstæðu í vistkerfum hafsins, geti haft ófyrirséðar afleiðingar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Óvæntur glaðningur fylgdi gjafasæðinu

Óvæntur glaðningur fylgdi gjafasæðinu
Pressan
Í gær

Þessi þrjú eldhústæki ættu aldrei að vera í sambandi þegar þau eru ekki í notkun – Geta skapað mikla eldhættu

Þessi þrjú eldhústæki ættu aldrei að vera í sambandi þegar þau eru ekki í notkun – Geta skapað mikla eldhættu
Pressan
Í gær

Segir að Pútín hafi málað sig út í horn

Segir að Pútín hafi málað sig út í horn
Pressan
Í gær

Svona er hægt að sjóða kartöflur hraðar

Svona er hægt að sjóða kartöflur hraðar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona lengi er hægt að geyma kjöt í frysti

Svona lengi er hægt að geyma kjöt í frysti
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta finnst gáfuðu fólki afslappandi en venjulegt fólk þolir þetta ekki

Þetta finnst gáfuðu fólki afslappandi en venjulegt fólk þolir þetta ekki
Pressan
Fyrir 2 dögum

Læknir varar við vinsælum morgunmat – Getur verið heilsunni hættulegur

Læknir varar við vinsælum morgunmat – Getur verið heilsunni hættulegur
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þanin(n) og þreytt(ur)? – Þessir ávextir geta hjálpað

Þanin(n) og þreytt(ur)? – Þessir ávextir geta hjálpað