fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
Pressan

Nemandinn sem ók yfir kennarann sinn rýfur þögnina

Pressan
Fimmtudaginn 12. mars 2026 08:07

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Átján ára menntaskólanemi í Gainesville í Georgíu í Bandaríkjunum hefur lýst yfir djúpri iðrun eftir að hann ók bifreið sinni yfir kennara sinn í misheppnuðum hrekk fyrr í þessum mánuði.

Neminn, Jayden Wallace, segist ætla að verja ævi sinni í að heiðra minningu kennarans Jason Hughes, sem hann segir hafa haft mikil áhrif á líf sitt.

Atvikið átti sér stað á fimmtudagskvöld í síðustu viku þegar hópur nemenda kom að heimili Hughes og dreifði klósettpappír yfir lóðina við hús hans.

Sjá einnig: Vinsæll kennari lést eftir að hrekkur nemenda fór úr böndunum

Rann í bleytunni

Nemendur voru í svokölluðu „junior/senior“-stríði þar sem yngri og eldri nemendur safna stigum með allskonar hrekkjum. Hughes fór út úr húsi sínu í þeim tilgangi að ræða við nemendurna, en hann rann til í bleytu og datt út á götuna við heimili sitt.

Í kjölfarið var ekið yfir hann þegar Wallace reyndi að aka pallbíl sínum á brott af vettvangi. Hughes var fluttur á sjúkrahús en lést síðar af meiðslum sínum.

Samkvæmt fjölmiðlum hafði Hughes staðið fyrir utan heimili sitt til að „grípa“ Wallace og skólafélaga hans við hrekkinn. Þegar hann hljóp á eftir þeim rann hann til í rigningunni með þeim afleiðingum að slysið varð.

Ungmennin fimm veittu kennaranum skyndihjálp áður en viðbragðsaðilar komu á vettvang og fluttu hann á sjúkrahús.

Fullur iðrunar

Wallace hefur verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi með ökutæki auk fleiri brota, en verði hann ákærður og fundinn sekur gæti hann átt yfir höfði sér 3 til 15 ára fangelsisdóm. Hin ungmennin voru einnig ákærð en fyrir vægari sakir, þar á meðal fyrir að hafa farið inn á lóð Hughes í leyfisleysi og fyrir að dreifa rusli.

Wallace var fullur iðrunar í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér og New York Post vitnar til. „Ég heiti því að lifa restina af lífi mínu á þann hátt að heiðra minningu Hughes með því að lifa í anda Krists. Hann mun aldrei gleymast,“ sagði hann.

Fjölskylda Wallace segir harmleikinn hafa haft djúpstæð áhrif á hana og samfélagið. Eiginkona Hughes hefur hvatt til þess að ákærurnar gegn ungmennunum verði felldar niður og sagt fjölskylduna vilja koma í veg fyrir að fleiri líf eyðileggist vegna atviksins.

„Þetta er hræðilegur harmleikur og fjölskylda okkar er staðráðin í að koma í veg fyrir annan harmleik sem myndi eyðileggja líf þessara nemenda. Það væri andstætt ævilangri hugsjón Jason um að leggja sitt af mörkum til þessara ungmenna,“ sagði hún.

Saksóknari Hall-sýslu hefur sagt að hann muni fara yfir málið og meta hvort ástæða sé til að fella ákærurnar niður.

Hughes lætur eftir sig eiginkonu og tvo unga syni. Samfélagið hefur brugðist við með miklum stuðningi og hafa 450 þúsund Bandaríkjadalir safnast í netfjáröflun til að standa straum af kostnaði við skólagöngu drengjanna í framtíðinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Ryanair með nýjung á öllum flugvöllum

Ryanair með nýjung á öllum flugvöllum
Pressan
Í gær

Hún blekkti alla með englaandlitinu – Óhugnaður á óhugnað ofan

Hún blekkti alla með englaandlitinu – Óhugnaður á óhugnað ofan
Pressan
Fyrir 4 dögum

Á yfir höfði sér þunga refsingu fyrir að sleikja rör

Á yfir höfði sér þunga refsingu fyrir að sleikja rör
Pressan
Fyrir 4 dögum

Óhugnanleg ráðgáta leyst – Lík fannst sundurbútað í ferðatöskum árið 1998

Óhugnanleg ráðgáta leyst – Lík fannst sundurbútað í ferðatöskum árið 1998
Pressan
Fyrir 4 dögum

Varalesari varpar ljósi á viðvörun Trumps til Karls – „Við ræðum þetta síðar“

Varalesari varpar ljósi á viðvörun Trumps til Karls – „Við ræðum þetta síðar“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Konan sem giftist föður sínum rýfur þögnina um stöðu sína í dag

Konan sem giftist föður sínum rýfur þögnina um stöðu sína í dag